FH 2 -0 ÍA
1-0 Davíð Þór Viðarsson (75)
2-0 Matthías Guðmundsson
1-0 Davíð Þór Viðarsson (75)
2-0 Matthías Guðmundsson
Stærsti leikur umferðarinnar fór fram í Kaplakrika þar sem Skagamenn komu í heimsókn og mættu þar heimamönnum í FH.
Heimir Guðjónsson gerði enga breytingu á liði sínu sem vann HK en Guðjón Þórðarson gerði tvær þar Jón Vilhelm Ákason tók út leikbann en í hans stað kom Árni Ingi Pjetursson inn í liðið og Guðjón Heiðar Sveinsson kom inn fyirr Igor Bilokapic.
Leikurinn byrjaði fremur rólega en eftir 13. mínútna leik fékk Árni Ingi Pjetursson gult spjald fyrir brot á Atla Guðnasyni. Stuttu síðar var Tryggvi Guðmundsson nálægt því að komast í gott færi þegar hann fékk boltann inn fyrir vörn ÍA en fyrsta snerting Tryggva var slök og boltinn fór útaf.
Atli Guðnason komst í þokkalegt færi eftir 21 mínútu en hann komst ekki framhjá Dario Cingel varnarmanni ÍA. Fjórum mínútum síðar var Atli Viðar Björnsson að sleppa í gegn en Dario Cingel átti frábæra tæklingu og náði að bjarga.
Eftir rúman hálftíma leik var Dario Cingel næstum búinn að setja boltann í eigið net eftir fyrirgjöf frá Atla Viðari Björnssyni.
Eftir 39. Mínútna leik fékk Atli Guðnason tækifæri fyrir opnu marki en skaut yfir, Atli Viðar sendi inn í teiginn þar sem Atla Guðnason var með opið mark en skaut yfir.
Tryggvi Guðmundsson fékk gott tækifæri til að skora þegar stutt var eftir af hálfleiknum en Guðjón Heiðar Sveinsson bjargaði eftir að Tryggvi hafði í tvígang reynt að koma skoti að marki.
Staðan var 0-0 þegar leikmenn gengu til búningsherbergja en FH-ingar voru klaufar að hafa ekki náð að skora.
Eftir tólf mínútna leik í síðari hálfleik fékk Atli Viðar Björnsson boltann í teig en hitti ekki boltann rétt fyrir framan markið.
Eftir klukkutíma leik átti Tommy Nielsen skalla en Guðjón Heiðar bjargaði í annað skipti í leiknum á línu.
Stuttu síðar gerði Guðjón Þórðarson sína fyrstu breytingu í leiknum þegar Andri Júlíusson kom inn fyrir Björn Bergmann Sigurðsson.
Eftir 66. mínútna leik fékk Atli Við Björnsson boltann inn fyrir vörn ÍA, hann tók vel á móti boltanum setti knöttinn á milli fóta Esben Madsen en skotið í hliðarnetið úr þröngu færi.
Þremur mínútum síðar skoraði Tryggvi Guðmundsson en markið var dæmt af vegna þess að Jónas Grani tók boltann með hendi.
Þegar nítján mínútur voru eftir gerði Heimir Guðjónsson tvær breytingar, Matthías Guðmundsson og Vilhjálmsson komu inn fyrir Jónas Grana og Atla Guðnason.
Andartaki síðar fékk Stefán Þórðarson boltann úti í hægri kanti, hann gaf fyrir þar sem Andri Júlíusson kom á siglingunni en skot hans fór í stöng.
Á 75. mínútu skoraði Davíð Þór Viðarsson með skoti inn í teig. Tommy Nielsen skallaði boltann á markið en Esben Madsen varði út í teig þar sem Davíð Þór var og náði að skora.
Í uppbótartíma skoraði Matthías Guðmundson eftir að Matthís Vilhjálmsson og Tryggvi Guðmundson höfuðu leikið sín á milli sendi Matthías Vilhjálmsson boltann inn í teig þar sem nafni hans Guðmundsson kom og skoraði. 2-0 fyrir FH.
Stuttu síðar brutust út smávægileg slagmsál en úr þei leystist fljótlega en þeir Þórður Guðjónsson og Guðmundur Sævarsson fengu gult spjald en leiknum lauk með 2-0 sigri FH.
FH-ingar voru hættulegri nánast allan leikinn en tókst erfilega að ná að koma boltanum í netið, Skagamenn voru skipulagðir en ekki nægilega beittir fram á við.
FH-ingar með fullt hús stiga eftir tvo leiki en lærisveinar Guðjóns Þórðarsonar aðeins með eitt stig.
FH (4-3-3): Daði Lárusson (M) (F); Guðmundur Pétursson, Freyr Bjarnason, Tommy Nielsen, Hjörtur Logi Valgarðsson; Davíð Þór Viðarsson, Dennis Siim, Jónas Grani Garðarsson (Matthías Vilhjálmsson, 71), Atli Viðar Björnsson (Arnar Gunnlaugsson, 84), Tryggvi Guðmundsson, Atli Guðnason (Matthías Guðmundsson, 71)
Ónotaðir varamennGunnar Sigurðsson (M), Halldór Halldórsson, Björn Daníel Sverrisson, Heimir Snær Guðmundsson.
ÍA (4-5-1) Esben Madsen (M), Árni Thor Guðmundsson, Helgi Pétur Magnússon, Dario Cingel, Igor Bilokapic, Árni Ingi Pjetursson (Igor Bilokapic,, 84), Heimir Einarsson, Bjarni Guðjónsson, Björn Bergmann Sigurðsson (Andri Júlíusson, 63), Vjekoslav Svadumovic (Þórður Guðjónsson, 73), Stefán Þór Þórðarson.
Ónotaðir varamenn Trausti Sigurbjönsson (M) Sölvi Gylfason, Atli Guðjónsson, Guðmundur Böðvar Guðjónsson.
Maður leiksins Dario Cingel (ÍA)
Dómari Jóhannes Valgeirsson
Aðstæður Völlurinn ágætur, veður þokkalegt þó smá kuldi
Áhorfendur 1927 voru í Kaplakrika



