Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 15. maí 2008 22:18
Magnús Valur Böðvarsson
Umfjöllun: Sannfærandi Keflavíkursigur
Simun Samuelsen skallar boltann í leiknum í kvöld.
Simun Samuelsen skallar boltann í leiknum í kvöld.
Mynd: Víkurfréttir - Jón Björn Ólafsson
Guðni Rúnar Helgason í baráttu við Símun.
Guðni Rúnar Helgason í baráttu við Símun.
Mynd: Víkurfréttir - Jón Björn Ólafsson
Guðjón Árni Antoníusson og Víðir Leifsson kljást.
Guðjón Árni Antoníusson og Víðir Leifsson kljást.
Mynd: Víkurfréttir - Jón Björn Ólafsson
Mynd: Víkurfréttir - Jón Björn Ólafsson
Keflavík 2 - 1 Fylkir
1-0 Hólmar Örn Rúnarsson (20)
2-0 Guðmundur Steinarsson (48)
2-1 Andrés Már Jóhannesson (88)

Keflvíkingar mættu Fylkismönnum í kvöld á Sparisjóðsvellinum í Keflavík. Gengi liðanna í fyrstu umferðinni var misjafnt en Keflvíkingar unnu óvæntan stórsigur á Íslandsmeisturum Vals á meðan Fylkismenn töpuðu stórt á heimavelli sínum gegn Frömurum. Á seinasta ári fór leikur liðanna 1-0 fyrir Keflvíkingum en þar skoraði Færeyingurinn Simun Samuelsen sigurmark liðsins en Fylkismenn hefndu ófaranna með stórsigri 4-0 á Fylkisvelli en þar fór Albert Ingason mikinn og skoraði þrennu. Hann er hinsvegar horfinn á braut til Valsmanna.

Keflvíkingar gerðu eina breytingu á liði sínu fyrir leikinn gegn Fylki en Magnús Sverrir Þorsteinsson fékk að setjast á varamannabekkinn og Hólmar Örn Rúnarsson tók sæti hans. Fylkismenn gerðu hinsvegar tvær breytingar á sínu liði, Hermann Aðalgeirsson og Haukur Ingi Guðnason koma inní byrjunarlið Fylkis í stað Halldórs Hilmissonar og Jóhann Þórhallssonar.

Heimamenn komu virkilega ákveðnir til leiks og náðu að skapa sér ágætis færi fyrst komst Guðmundur Steinarsson í ágætis færi en skot hans var laust og beint á Fjalar í markinu. Föstu leikatriði Keflvíkinga voru virkilega hættuleg en Keflvíkingar fengu alls 6 hornspyrnur í fyrri hálfleiknum og flestar stórhættulegar. Guðjón Árni Antoníusson átti skalla rétt yfir mark Fylkis.

Það var svo á 20.mínútu að sóknarþungi Keflvíkinga bar árangur en þá tók Hólmar Örn Rúnarsson hornspyrnu frá vinstri, spyrnan fór á nærstöngina þar sem Fjalar náði ekki að slá boltann annað en en markið. Keflvíkingar voru ekki hættir í hornspyrnunum því Hólmar Örn komst í algjört dauðafæri í miðjum markteig Fylkismanna en á einhvern óskiljanlegan hátt skaut hann yfir markið.

Fylkismenn voru lítt skárri í fyrri hálfleiknum en þeir voru gegn Frömurum og náðu ekki að skapa sér nein hættuleg færi, Allan Dyring komst næst því þegar hann fékk sendingu innfyrir vörn Keflvíkinga, þar var hann mættur einn í vítateignum gegn Ómari, stoppaði boltann en náði svo ekki að athafna sig fyrir skot og sóknin rann útum sandinn. Staðan í hálflei því 1-0 fyrir Keflavík og algjörir yfirburðir heimamanna.

Keflvíkingar byrjuðu síðari hálfleikinn af sama krafti og þeir enduðu þann fyrri. Fylkismenn fengu sína fyrstu hornspyrnu í leiknum í upphafi síðari hálfleiks, hún var misheppnuð og Keflvíkingar brunuðu í sókn, boltinn barst til Patrik Redo sem gaf á Guðmund Steinarsson, hann leit í kringum sig en sá engan samherja, hann lét bara vaða á markið af 25 metra færi og beint í bláhornið glæsilegt mark hjá Guðmundi og kom Keflvíkingum þar með í 2-0.

Fylkismenn komust eftir þetta meira inn í leikinn og börðust töluvert meira en þeir höfðu gert, en ekkert markvert gerðist fyrr en á 72.mínútu þegar Haukur Ingi Guðnason tók aukaspyrnu á hættulegum stað sem Ómar Jóhannsson varði glæsilega. Stuttu síðar hefðu Keflvíkingar getað gert út um leikinn þegar Þórarinn Kristjánsson fékk dauðafæri í miðjum vítateig Fylkismanna, en Fjalar Þorgeirsson varði skot hans glæsilega í horn.

Fylkismenn höfðu á þessum tímapunkti gert þrjár breytingar inná komu Andrés Jóhannesson, Ásgeir Börkur Ásgeirsson og Kjartan Andri Baldvinsson. Við þessar breytingar hresstist sóknarleikur Fylkismanna til muna og fór svo að einn þeirra Andrés Már Jóhannesson náði að skora. Fylkismenn fengu aukaspyrnu á vinstri kantinum, fyrirgjöf þeirra var skölluð frá, beint á Andrés Má sem negldi boltann glæsilega í netið frá vítateigslínu, sannarlega stórglæsilegt mark.

Allt í einu var komin spenna í leikinn og freistuðu Fylkismenn þess að jafna metin. Þegar tvær mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma voru Keflvíkingar nálægt því að skora sjálfsmark en boltinn endaði í hornspyrnu. Þá vildu Fylkismenn fá vítaspyrnu þegar sóknarmaður þeirra féll í teignum en Garðar Örn Hinriksson góður dómari leiksins lét leikinn halda áfram. Þar með fór síðasta tækifæri Fylkismanna og Keflvíkingar unnu sanngjarnan 2-1 sigur.

Keflavík 4-3-3: Ómar Jóhannsson – Guðjón Árni Antoníusson, Guðmundur Viðar Mete, Kenneth Gustafsson, Nicolai Jörgensen – Hallgrímur Jónasson, Hans Yoo Mathiesen(Hörður Sveinsson 72), Hólmar Örn Rúnarsson – Simun Samuelssen, Guðmundur Steinarsson (,Magnús Sverrir Þorsteinsson 81) Patrik Redo(Þórarinn Kristjánsson 62)
Ónotaðiar varamenn: Jón Gunnar Eysteinsson, Árni Freyr Ásgeirsson, Einar Orri Einarsson, Brynjar Guðmundsson, ,
Fylkir 4-4-2: Fjalar Þorgeirsson, Guðni Rúnar Helgason, David Hannah, Kristján Valdimarsson, Víðir Leifsson – Hermann Aðalgeirsson, Ólafur Stígsson(Andrés Már Jóhannesson 60), Ian Jeffs, Peter Gravesen – Haukur Ingi Guðnason Ásgeir Börkur Ásgeirsson 73), Allan Dyring (Kjartan Andri Baldvinsson 73)
Ónotaðir varamenn: Þórir Hannesson, Jóhann Þórhallsson, Björn Metúsalem Aðalsteinsson, Halldór Hilmisson,

Dómari: Garðar Örn Hinriksson góður
Aðstæður: Smá gola, völlurinn sæmilegur
Áhorfendur: 949
Maður leiksins: Hólmar Örn Rúnarsson Keflavík
Gul spjöld: Peter Gravesen (56) fyrir brot, Ian Jeffs fyrir brot (76) Andrés Már Jóhannesson (79) fyrir brot Guðjón Árni Antoníusson fyrir brot (87)

Skot Keflavík 16- Fylkir 6
Á mark Keflavík 7 - Fylkir 3
Hornspyrnur Keflavík 9 - Fylkir 5
Rangstaða Keflavík 2 - Fylkir 2
Slapp
banner
banner