Hólmar Örn Rúnarsson miðjumaðurinn knái hjá Keflvíkingum átti góðan leik fyrir lið sitt þegar liðið lagði Fylki 2-1 í Keflavík í kvöld. Hann er nýkominn til liðs við Keflvíkinga eftir að hafa spilað í Danmörku.
,,Ég er aðalega sáttur við að fá þrjú stig hérna á heimavelli en mér fannst við eiga klára leikinn töluvert fyrr, ekki hleypa þeim inn í leikinn og setja pressu svona á okkur í lokin," sagði Hólmar við Fótbolta.net eftir leikinn í kvöld.
Andrés Már Jóhannesson minnkaði muninn í lok leiksins og Hólmar telur sig sök þar.
,,Ég er ekki frá því að ég hefði átt að koma í veg fyrir markið, held að þetta hafi verið minn maður og ég hefði átt að vera kominn fyrr í hann en hann náði að smella boltanum upp í vinkilinn. Þannig að ég tek það mark algjörlega á mig," sagði Hólmar Örn um stórglæsilegt mark Andrésar.
Hólmar skoraði sjálfur sérstakt mark en spurning er hvort markið verði skráð sem sjálfsmark á Fjalar Þorgeirsson. ,,Hornspyrnurnar hjá okkur voru hættulegar og þetta markkom úr einni slíkri ég er ekki alveg viss hvort að hann hafi farið inn eða hvort Fjalar hafi slegið hann inn eða hvað."
Þegar hann var spurður út í framhaldið var svarið einfalt ,,Er það ekki bara gamla góða klisjan, við tökum bara einn leik fyrir í einu."



