Leifur Garðarsson þjálfari Fylkis var að vonum vonsvikinn eftir 2-1 tap Fylkis gegn Keflavík í kvöld en liðið er án stiga eftir tvær umferðir.
,,Ég er gríðarlega svekktur þar sem við börðumst geysilega vel í þessum leik. Við vorum smá óöruggir í byrjun en unnum okkur betur inn í leikinn í síðari hálfleik, náum að minnka muninn í 2-1 og hefðum átt að fá víti."
,,Þetta er eitthvað augljósasta víti sem sögur fara af þegar markvörður þeirra gjörsamlega gengur frá leikmanni okkar í teignum en það féll ekki með okkur í þessum leik eins og þessi atriði sem hefðu getað breytt úrslitum þessa leiks," sagði Leifur við Fótbolta.net eftir leik.
,,Dómgæslan var svo sem ekkert eitthvað svo slæm það voru ákveðin atriði sem féllu ekki okkar megin og svo held ég aðstoðardómarinn okkar megin hafi verið að fara á taugum. Ég tjáði mig einu sinni við hann hvort þetta væri eitthvað djók og fékk gult spjald. Svo sér maður þjálfara vera hoppandi og skoppandi á hliðarlínunum á öðrum leikjum án þess að nokkuð sé gert við því og virðingin sem á að vera gagnvart dómurunum en greinilega ekki í hina áttina," sagði Leifur.
Keflvíkingar ullu miklum usla í vörn Fylkismanna með hættulegum hornspyrnum og skoruðu meðal annars mark snemma leiks úr einni slíkri Leifur var ekki sérstaklega sáttur við það mark.
,,Við erum mikið minna lið en þeir og einhvern vegin urðum við að reyna leysa það og hvort að Fjalar hafi verið hindraður í fyrsta markinu skal ég ekki segja, mínir leikmenn voru allavega á því máli að hann hafi verið hindraður," sagði Leifur sem fannst sínir menn eiga meira skilið en ekkert eftir þennan leik.
,,Miðað við þá miklu vinnu og baráttu sem við lögðum í þennan leik þá fannst mér það, menn vissu uppá sig skömmina eftir síðasta leik og við gátum mögulega ekki verið slakari, þeir tóku til hendinni og börðust og gerðu það geysilega vel og ég hrósa þeim sérstaklega fyrir það."
Að lokum sagði Leifur vera sérstaklega stoltur að þjálfa Fylki og það vanti bara herslumuninn til að ná fyrstu stigunum.



