Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 15. maí 2008 22:07
Gunnar Gunnarsson
Gunnar Oddsson: Tiltölulega sáttur með fyrsta stigið
Gunnar Oddsson þjálfari Þróttara
Gunnar Oddsson þjálfari Þróttara
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gunnar Oddsson þjálfari nýliða Þróttara var tiltölulega sáttur með að ná einu stigi gegn velspilandi liði Breiðabliks þegar við hjá Fótbolta.net náðum tali af honum eftir leik liðsins á Kópavogsvelli í kvöld.

,,Við erum þokkalega sáttir með að ná einu stigi hérna í Kópavoginum. Við urðum auðvitað að laga okkar leik frá tapleiknum gegn Fjölni. Mér fannst við gera það þannig að sómi væri að.

,,Við lögðum kannski mikla áherslu á varnarleikinn, við vissum að þeir væru vel spilandi og með skæða framherja. Menn sýndu það alveg í dag að þeir geta vel spilað í þessari deild."


Gunnar sagði að menn þyrftu að koma með sama hugarfari til leiks gegn FH í næsta leik sem er næstkomandi mánudag á Valbjarnarvelli.

,,Já, það er alveg klárt, FH-ingunum er náttúrulega spáð í efri hlutanum, við verðum að byggja á því sem við gerðum vel í dag og bæta einhverju við. Þannig að við munum mæta þeim af fullri hörku."
Slapp
banner
banner