Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 15. maí 2008 22:20
Magnús Valur Böðvarsson
Kristján Guðmundsson: Áttum að vera búnir að klára þá
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Kristján Guðmundsson þjálfari Keflvíkinga var að vonum himinlifandi eftir góðan sigur sinna manna gegn Fylki í kvöld.

,,Það er alltaf gaman að vinna fótboltaleiki og erum hæst ánægðir með byrjunina í sumar, framan af spiluðum við glimrandi bolta og gera réttu hlutina, það riðlaðist aðeins undir lokin og það er helst eitthvað sem við þurfum að horfa á," sagði Kristján við Fótbolta.net í kvöld.

,,Við vissum lítið um hvernig Fylkisliðið kæmi til leiks eftir slæma byrjun í 1.umferð og vissum svo sem ekkert hvað við vorum að fara út í en ég sagði bara við strákana að spila okkar leik og ekki hafa áhyggjur af andstæðingunum."

,,Við hleyptum þeim að óþörfu inn í lokin og ég er ekki alveg klár hversu opin færi þeir fengu þarna í lokin en það var algjör óþarfi að hleypa þeim í leikinn enda áttum við að vera búnir að klára leikinn."

Aðspurður um nýju leikmennina þá Hörð Sveinsson, Hólmar Örn og Hans Mathiesen sagði Kristján: ,,Þeir eru að koma vel inn en við þurfum bara meiri tíma til að keyra þá inn í þetta og koma okkur betur inní okkar leikskipulag."
Slapp
banner
banner