Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 15. maí 2008 22:19
Hörður Snævar Jónsson
Davíð Þór: Ekki oft sem ég skora þannig að ég má vera sáttur
Davíð Þór í leiknum í dag.
Davíð Þór í leiknum í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Við vorum að spila vel og sérstaklega eftir fyrstu 25 mínúturnar var þetta mjög gott þannig að við erum sáttir,” sagði Davíð Þór Viðarsson í samtali við Fótbolta.net eftir að FH hafði unnið ÍA 2-0.

Davíð skoraði fyrra mark FH eftir 75. Mínútna leik þegar hann fékk boltann út í teig og kom honum í netið.

,,Það var ekki nógu mikill hraði á okkur í fyrri hálfleik en við löguðum það síðasta korterið í fyrri hálfleik og svo allan seinni hálfleikinn, þetta var mjög fínt í seinni hálfleik.”

Skagamenn lágu aftarlega á vellinum en FH-ingar fengu þó nokkur færi til þess að skora en tókst ekki fyrr en að Davíð braut múrinn.

,,Þeir gera það sem þeir gera vel, þeir verjast mjög vel, sækja reyndar ekki á mörgum mönnum en eru með sterka men frammi og eru eitt af betri liðunum í deildinni það er ekki spurning.”

,,Það er ekki það oft sem ég skora þannig að ég má vera sáttur við það,”
sagði Davíð Þór og er bjartsýn á framhaldið.

,,Þetta er bara það sem koma skal og við ætlum að koma í hvern einasta leik og vinna hann og að er vonandi að það takist. Menn eru hungraðir eftir að hafa klúðrað titlinum í fyrra þar sem við vorum algjörir aular og ætlum að vinna þennan bikar aftur, það er ekki spurning,” sagði Davíð Þór að lokum í samtali við Fótbolta.net
Slapp
banner