Gunnleifur Gunnleifsson markvörður og fyrirliði HK meiddist á ökkla í leik liðsins gegn Fram í Landsbankdeildinni í kvöld.
,,Ég er nokkuð bólginn og svolítið aumur í þessu en þetta verður að koma í ljós á morgun," sagði Gunnleifur við Fótbolta.net í kvöld en meiðsli hans verða skoðuð betur á morgun.
Gunnleifur meiddist þegar að hann varði skot frá Paul McShane í fyrri hálfleik.
,,Ég bögglaði löppina undir mig í skoti hjá Paul McShane og ég gat ekki haldið áfram. Við prófuðum að teipa þetta í hálfleik en þetta var vonlaust," sagði Gunnleifur.
Ögmundur Ólafsson tók stöðu hans í markinu í kvöld en hann kom til HK frá Stjörnunni á dögunum.

