,,Við áttum svo sem von á mjög erfiðum leik og ég taldi fyrir fram að eitt mark myndi ráða úrslitum í þessum lek og það má kannski segja sem svo að það hafi ráðið því," sagði Guðjón Þórðarson í samtali við Fótbolta.net eftir leikinn þegar hans menn höfðu tapað fyrir FH 2-0.
,,Seinna markið sem þeir gera er eftir skyndisókn, svona klafs mark en enga síður er þannig að FH liðið er mjög sterkt og það eru ekki mörg lið sem koma hérna sem gera einhverjar rósir."
,,Lengst um vorum við í þeirri stöðu sem við vildum alveg vera í, það vantaði aðeins uppá uppspilið hjá okkur og við vorum að tapa boltanum of mikið inná miðsvæðinu og þeir komust í þá stöðu sem ég kalla blinda stöðu, þegar það kemur maður á bakvið okkur og þar með töpuðu við boltanum," sagði Guðjón.
Andri Júlíusson fékk gott færi í stöðunni 0-0 til að skora en skot hans fór í stöngina. ,,Það er ekki spurt af því þótt að við fáum dauðafæri og eigum skot í stöng nokkrum sekúndum áður en þeir skora, það er ekki spurt að því. Þú færð það bara út úr fótbolta leik sem þú átt skilið ."
,,Það er rosalegur punktur ef að fallið okkar meiginn þá má segja sem svo að það hefði orðið annað uppá teningnum, þá hefðum við bara sigið aftar en þeir bruna svo upp og skora."
,,Það mátti ekki muna miklu þarna einu sinni til tvisvar í teignum," sagði Guðjón sem sagði framfarir vera á liðinu.
,,Hún var betri en lengst af í Blika leiknum en við þurfum samt að bæta hann. Það eru samt stöður sem ég er óánægður með þegar við erum að flýta okkur of mikið."
Hann er þó ekki farinn að örvænta þrátt fyrir eitt stig í tveimur leikjum. ,,Þetta er miklu meira en í fyrra, þá vorum við ekki með neitt stig eftir fyrstu tvær umferðirnar. Við vitum alveg að við eigum töluvert inni ennþá og ætlum okkur að bæta og ná því fyrir leikinn gegn Fram," sagði Guðjón Þórðarson að lokum í samtali við Fótbolta.net.

