Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 15. maí 2008 22:44
Hörður Snævar Jónsson
Heimir Guðjónsson: Fannst þetta sanngjarn sigur
Guðjón Þórðarson og Heimir Guðjónsson hressir fyrir leikinn í kvöld.
Guðjón Þórðarson og Heimir Guðjónsson hressir fyrir leikinn í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Mér fannst þetta sanngjarn sigur," sagði Heimir Guðjónsson þjálfari FH í samtali við Fótbolta.net eftir sigur liðsins á ÍA í kvöld 2-0.

,,Við byrjuðum leikinn ekkert vel spilanlega séð en við mættum þeim í baráttunni en svo þegar leið á leikinn þá fannst mér við spila þetta ágætlega, fengum nokkur mjög góð færi og náum að klára leikinn," sagði Heimir sem var sáttur með að flæðið kom í leik leiksins þegar líða tók á leikinn.

,,Það kom í seinni hálfleik þegar menn voru yfirvegaðir á boltanum þá fór þetta að ganga."

,,Skagaliðið er mjög massíft lið og Gaui kann varnarleik út og inn, ég man ekki eftir því að lið hafi fengið svona mörg færi á móti FH. Við náðum að opna þá ágætlega og unnum sanngjarn sigur."


FH hefur unnið fyrstu tvo leikina og eru á toppnum ásamt Fram en liðin eru með með fimm mörk skoruð og ekkert fengið á sig.

,,Við tökum bara gömlu klisjuna, einn leik fyrir í einu það er strax leikur á mánudaginn á móti Þrótti og við ætlum að vera klárir í það," sagði Heimr að lokum í samtali við Fótbolta.net
Slapp
banner
banner