Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 15. maí 2008 23:00
Gunnar Gunnarsson
Ólafur Kristjánsson: Þróttararnir spiluðu leikinn rétt á okkur
Ólafur Kristjánsson þjálfari Breiðabliks
Ólafur Kristjánsson þjálfari Breiðabliks
Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Ólafur Kristjánsson þjálfari Blika var langt frá því að vera sáttur með að ná ekki að landa sigri gegn Þrótturum á heimavelli í kvöld.

,,Vonbrigðin voru sérstaklega þau að við spiluðum slakan fyrri hálfleik og svo jafnframt í ljósi seinni hálfleiks þá eru það mikil vonbrigði að ná ekki í þrjú stig. En eins og fyrri hálfleikurinn spilaðist þá gátum við ekki farið framá eitt eða neitt," sagði Ólafur að leik loknum.

,,Leikurinn var mjög hægur í fyrri hálfleik og mikið um stopp, boltinn gekk illa á milli manna og það var ég sérstaklega óánægður með hjá okkur."

,,Þróttararnir spiluðu leikinn rétt á okkur og við náðum ekki að leysa það. Við vorum með góð tök á leiknum í seinni hálfleik og þess vegna hefði ég viljað sjá okkur vinna."

Blikar urðu jafntefliskóngar í fyrra og tvö jafntefli staðreynd hjá Blikum í upphafi móts en Ólafur ætlar sér að snúa þessum jafnteflum í sigra.

,,Að sjálfsögðu þarf að fara að snúa þessum jafnteflum í sigra, við eigum ennþá sjö leiki til góða til að ná í þessi níu jafntefli í fyrra."

,,Jafntefli uppá Skaga eru aldrei slæm úrslit en þau voru það eiginlega í ljósi leiksins. Hérna er jafnteflið fúlt út af döprum fyrri hálfleik. Við verðum að girða okkur í brók og finna hvað er að, ég þykist vita hvert vandamálið er."

,,Við þurfum að leggja höfuðin í bleyti og æfa okkur vel fyrir þriðjudaginn. En við förum í Vesturbæinn til að ná í þrjú stig." sagði Ólafur að lokum.


Slapp
banner
banner
banner