Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 15. maí 2008 22:53
Hörður Snævar Jónsson
Bjarni Guðjónsson: Varnarlega séð vorum við allt í lagi
Bjarni í leiknum í kvöld.
Bjarni í leiknum í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bjarni Guðjónsson fyrirliði ÍA var að vonum ekki kátur eftir að hann og liðsfélagar sínir höfðu tapað 2-0 fyrir FH í Kaplakrika í kvöld.

,,Varnarlega séð vorum við allt í lagi en heilt yfir gekk þetta ekki vel," sagði Bjarni í samtali við Fótbolta.net eftir leikinn.

Andri Júlíusson fékk gott færi í stöðunni 0-0 til að skora en skot hans fór í stöngina og stuttu síðar skoruður FH-ingar.

,,Þetta var eins og við lögðum upp með og fengum færi til þess að skora," sagði Bjarni sem segir þennan leik og leikinn gegn Breiðablik í 1. umferðinni allt annað.

,,Það er eiginlega alveg ómögulegt að bera þetta saman, við erum á útivelli hérna og á heimaveli á móti Breiðablik, þetta var samt aðeins betra."

Hann segir þó enga örvæntingu komna í þeirra herbúðir. ,,Það að koma hingað í Fjörðinn og taka þrjú stig er ekki auðvelt en auðvitað ætlum við að gera það inni í klefa," sagði Bjarni að lokum í samtali við Fótbolta.net
Slapp
banner
banner
banner