Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 15. maí 2008 23:19
Arnar Daði Arnarsson
Þorvaldur Örlygsson: Við skoruðum á frábærum tíma
Þorvaldur var að vonum ánægður eftir leik sinna manna í kvöld.
Þorvaldur var að vonum ánægður eftir leik sinna manna í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
„Við erum mjög sáttir, þetta var fínn sigur í kvöld í erfiðum leik sem við bjuggumst alveg við að yrði,“ sagði Þorvaldur Örlygsson í viðtali við Fótbolta.net eftir 2-0 sigur á HK í Lansbankadeildinni í kvöld.

„Fyrsti heimaleikurinn alltaf smá stressandi en við spiluðum vel og náðum að skora tvö fín mörk og halda hreinu, sem er mjög gott. “

Framarar sóttu mikið í fyrri hálfleik án þess að skora, en skoruðu síðan fyrsta markið strax í upphafi síðari hálfleiks.

„Við skorum á góðum tíma, það er ekki hægt að neita því. Það er auðvitað frábært að byrja seinni hálfleikinn með því að skora. Við áttum auðvitað okkar færi í fyrri hálfleik en svo komu þeir með sín færi og ‘breikuðu” á okkur."

,,Þeir eru þéttir fyrir aftur og geta ‘breikað’ vel á okkur og við náðum ekki að ráða við þá í seinni hluta fyrri hálfleiks en á sama skapi héldum við bara áfram að sækja og reyna skapa okkur færi í fyrri hálfleik. 0-0 í hálfleik svo sem allt í lagi en frábær byrjun í seinni hálfleik."


Framarar hafa nú sigrað fyrstu tvo leikina á tímabilinu, var þetta það sem Þorvaldur bjóst við? „ Alveg eins og alveg eins ekki, ég er ekkert að velta mér of mikið uppúr þessu, maður tekur bara það sem kemur og höldum bara áfram. Það er nóg af leikjum framundan og það er ekki tími í rauninni að spá í hvað leikjum þú vinnur og tapar."

Fram eiga ÍA næst í 3.umferðinni uppi á Skaga „Það gerist ekki erfiðari útileikirnir en þar en ég held að það sé nú ekkert auðvelt í þessari deild og menn fara ekki upp á Skaga og sækja auðveld stig þannig við þurfum að leggja okkur verulega fram og undirbúa okkur vel."

Að lokum spurðum við Þorvald hvernig hann fannst HK spila í leiknum „ Þeir voru massaðir og þéttir eins og ég bjóst við þeim. Þeir voru skipulagðir og skipulögðu varnarleik sinn vel og voru að ná góðum sóknum upp en þeir urðu auðvitað fyrir áfalli þegar þeir misstu Gunnleif útaf, það vita það allir að Gunnleifur er besti markmaður deildarinnar og það er alltaf slæmt að missa góðan mann útaf,“ sagði Þorvaldur að lokum við Fótbolta.net.
Slapp
banner