Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 15. maí 2008 23:28
Arnar Daði Arnarsson
Ívar Björnsson: Alltaf erfitt að mæta HK
Ívar Björnsson skoraði síðara mark Framara í kvöld
Ívar Björnsson skoraði síðara mark Framara í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
„Þetta var mjög góður sigur í kvöld, góð liðsheild og góð barátta er það sem skilaði þessum sigri,“ sagði Ívar Björnsson eftir leik Fram og HK í kvöld, en Ívar skoraði seinna mark Fram í kvöld með skalla eftir hornspyrnu. Ívar segir að HK-ingar hafi ekki komið sér á óvart.

„Nei, það er alltaf erfitt að mæta HK, þetta eru massa gaurar og þetta er ein liðsheild hjá þeim og aldrei auðvelt að mæta þeim.“

,,Það var mikill léttur að skora strax í upphafi síðari hálfleiks. Eftir seinna markið þá fannst mér við slaka kannski einum of mikið á, en við rífum okkur upp aftur og tökum þreyttar lappir útaf og setjum ferskari lappir inná og það skilar sigri."

Framarar mæta lærisveinum Guðjóns Þórðarssonar í næsta leik upp á Skipaskaga „Sá leikur leggst mjög vel í mig, við tökum bara einn leik fyrir í einu og sjáum bara til hvernig hann fer . Við verðum allavegana tilbúnir í þann leik."

„Við settum okkur markmið fyrir tímabilið að taka einn leik fyrir í einu og nú höfum við sigrað tvo leiki í fyrstu tveimur leikjunum og vonandi að sá þriðji bætist við í næsta leik,“ sagði Ívar Björnsson að vonum kampakátur eftir leikinn í kvöld.

Slapp
banner
banner
banner