Fjölnir 2-1 KR
Fjölnir 1 - 2 KR
0-1 Guðjón Baldvinsson (28)
1-1 Ásgeir Aron Ásgeirsson (34)
1-2 Gunnar Már Guðmundsson (90)
0-1 Guðjón Baldvinsson (28)
1-1 Ásgeir Aron Ásgeirsson (34)
1-2 Gunnar Már Guðmundsson (90)
Fjölnismenn tóku á móti KRingum í fyrsta leik þeirra á heimavelli í Landsbankadeildinni í kvöld. Heimamenn hefðu varla getað óskað sér betri endi á þennan merka leik þeirra því þeir tryggðu sér sigur úr vítaspyrnu í uppbótartíma. Eftir sátu KRingar með sárt ennið en þeir virðast eiga í basli með nýliða deildarinnar sem þeir hafa mætt nú í upphafi móts.
Heimamenn byrjuðu leikinn af miklum krafti og áttu fyrsta færi leiksins þegar Gunnar Már Guðmundsson átti skot framhjá af stuttu færi eftir sendingu frá Ólafi Páli Snorrasyni í upphafi leiks. Fyrsta færi gestanna kom nokkrum mínútum síðar þegar Jónas Guðni Sævarsson skallaði boltann framhjá eftir sendingu Gunnars Arnars Jónssonar.
Leikurinn var mjög jafn í fyrri hálfleik og liðin skiptust á að sækja. Eftir kortérs leik fékk Björgólfur Takefusa sendingu inn í teig heimamanna en góður varnarleikur kom í veg fyrir að hann næði að nýta sér stöðuna. Fjölnismenn áttu nokkur góð skot í leiknum og eitt þeirra átti Gunnar Már um miðjan hálfleikinn. Boltinn fór hins vegar framhjá markinu.
Það voru gestirnir sem skoruðu fyrsta mark leiksins eftir tæplega hálftíma leik. Markið skoraði Guðjón Baldvinsson með skoti úr teignum eftir góða rispu Gunnars Arnars upp hægri kantinn. Guðjón hafði þó heppnina með sér því boltinn fór af varnarmanni Fjölnis og þaðan í netið.
Heimamenn voru ekki lengi að jafna metin en það gerði fyrrum KRingurinn Ásgeir Aron Ásgeirsson með skoti úr teignum eftir að gestunum mistókst að koma boltanum frá eftir hornspyrnu.
Eftir þetta skiptust liðin á að sækja án þess að skapa sér nein færi en áttu þó sitt hvort skotið að marki. Ágúst Þór Gylfason skaut boltanum framhjá eftir sókn heimamanna og skömmu síðar átti Óskar Örn Hauksson líflegan sprett að marki Fjölnis en skot hans fór sömuleiðis framhjá.
KRingar byrjuðu seinni hálfleikinn af meiri krafti en heimamenn og fengu kjörið tækifæri til að ná aftur forystunni, eftir að Þórður Ingason markmaður Fjölnis missti boltann klaufalega undir sig, en Guðjón Baldvinsson mokaði boltanum í þverslánna.
Stuttu síðar átti Gunnar Örn sendingu fyrir markið sem Björgólfur Takefusa rétt missti af. Heimamenn sótt svo í sig veðrið og eftir um klukkutíma leik fékk Pétur Georg Markan sendingu inn fyrir vörn gestanna en skot hans var varið af Kristjáni Finnbogasyni í markinu.
Leikurinn var í járnum út hálfleikinn en það voru þó gestirnir sem urðu að teljast líklegri til að skora. Undir lok leiksins náðu heimamenn þó stórsókn sem átti eftir að reynast happadrjúg.
Davíð Þór Rúnarsson fékk þá sendingu inn í teig gestanna en skalli hans fór í slánna og þaðan í Guðmund Pétursson og stefndi inn fyrir línuna en KRingar náðu að bjarga á síðustu stundu í horn. Upp úr hornspyrnunni fengu þeir svo vítaspyrnu eftir að Kristján Hauksson hafði skallað boltann í hendi Grétar Sigfinns Sigurðssonar.
Spyrnuna tók Gunnar Már, sem gengur undirviðurnefninu ,,herra Fjölnir" í Gravarvogi, og hann skoraði örugglega framhjá Kristjáni Finnbogasyni í markinu og tryggði sínum mönnum sigur í þeirra fyrsta heimaleik í efstu deild. KRingar ströggluðu aftur með nýliða í deildinni en mega vera vonsviknir enda erfitt að fá á sig mark í uppbótartíma.
Fjölnir (4-3-3): Þórður Ingason, Gunnar Gunnarsson, Kristján Hauksson, Óli Flóventsson, Magnús Einarsson, Ágúst Gylfason (59. Ólafur Johnson), Ásgeir Ásgeirsson, Gunnar Guðmundsson, Tómas Leifsson (67. Ómar Hákonarson), Pétur Markan (81. Davíð Rúnarsson), Ólafur Snorrason.
Ónotaðir varamenn: Steinar Gunnarsson, Illugi Gunnarsson, Eyþór Einarsson, Andri Ívarsson.
KR (4-4-2): Kristján Finnbogason, Guðmundur Gunnarsson, Grétar Sigurðsson, Gunnlaugur Jónsson, Eggart Einarsson, Óskar Hauksson (86. Jordao Tiogo), Viktor Arnarsson, Jónas Sævarsson, Gunnar Jónnson (77. Ingimundur Óskarsson), Guðjón Baldvinsson, Björgólfur Takefusa (68. Guðmundur Pétursson)
Ónotaðir varamenn: Kristinn Magnússon, Símon Símonarson, Skúli Friðgeirsson, Vilhjálmur Einarsson.
Dómari: Eyjólfur Kristinsson
Áhorfendur: 2125
Völlurinn: Mjög góður





