Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 15. maí 2008 23:39
Sigmann Þórðarson
Ásmundur Arnars: Höldum okkur alveg á jörðinni
Ásmundur Arnarsson
Ásmundur Arnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Mér fannst fyrri hálfleikurinn vera kaflaskiptur, kannski svolítið jafnræði þá, en í seinni hálfleiknum lá mikið á okkur og KRingar áttu mikið meira í leiknum," sagði Ásmundur Arnarsson þjálfari Fjölnis eftir leikinn í kvöld.

,,Við lögðum upp með það í hálfleik að fá ekki annað mark á okkur. Menn börðust vel fyrir þessu, unnu fyrir hlutunum og þetta endaði bara eins vel og þetta gat endað."

Fjölnismenn skoruðu sigurmarkið úr vítaspyrnu þegar komið var fram yfir venjulegan leiktíma. Ásmundur er ekki að velta því fyrir sér hvort sigurinn hafi verið sanngjarn eða ekki. ,,Það er ekki spurt um sanngirni í boltanum"

Fjölnismenn eru nýliðar í deildinni en hafa byrjað hana af miklum krafti og Ásmundur er eðlilega glaður með gengi liðsins.

,,Að sjálfsögðu er ég ánægður með sex stig eftir tvo leiki, það er ekki hægt annað en að vera ánægður með það. Við vitum sem er að þetta er langt mót, það eru tuttugu leikir eftir og við höldum okkur alveg á jörðinni."

Þetta góða gengi liðsins kemur Ásmundi ekkert sérstaklega á óvart. ,,Við vissum með báða þessa leiki að við eigum góða möguleika, ef við náum góðum leik getum við unnið hvaða lið sem er."
Slapp
banner
banner
banner