Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 15. maí 2008 23:41
Sigmann Þórðarson
Logi Ólafs: Vorum sterkari aðilinn í leiknum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Logi Ólafsson var þungur í brún eftir leik sinna manna í kvöld en KRingar létu í lægra haldi fyrir nýliðum Fjölnis í Gravarvoginum.

,,Mér fannst við vera sterkari aðilinn í leiknum. Við vissum að fyrri hálfleikurinn yrði okkur erfiður þar sem það er mikil stemming í þeirra liði, svo við lögðum þetta upp þannig að við myndum vera varkárir í fyrri hálfleik og reyna að vinna okkur þannig inn í leikinn," sagði Logi við Fótbolta.net eftir leikinn í kvöld.

Fjölnismenn skoruðu sigurmarkið úr vítaspyrnu á lokamínútum leiksins. Logi telur þó að sínir menn hafi átt að vera búnir að klára leikinn í seinni hálfleik.

,,Mér finnst að við hefðum átt að klára þetta í upphafi seinni hálfleiks þegar við áttuðum okkur á því að við gætum haldið boltanum betur, verið rólegri og skapað meira fram á við og það er býsna súrt að hafa ekki klárað þetta þá."

Þrátt fyrir tap í kvöld lítur Logi á björtu hliðarnar á því sem fram fór.

,,Ég tel að við getum betur. Við leystum ákveðna hluti hérna mjög vel. Við leystum málin vel í varnarleiknum að mestu leyti. Það eru tvö föst leikatriði sem við fáum á okkur mark úr og það er ekki nógu gott. En við leysum það að þeir eiga ekki nein færi þess utan. Ég er líka mjög ánægður með það hvernig þetta þróaðist í byrjun síðari hálfleiks en við eigum að skora fleiri mörk."
Slapp
banner
banner