„Að sjálfsögðu er ég ekki ánægður með að fá ekkert út úr leiknum í kvöld, við viljum auðvitað vinna þá leiki sem við spilum þannig við erum als ekki sáttir með það að fá engin stig í kvöld.“ sagði Gunnar Guðmundsson í viðtali við Fótbolta.net eftir 2-0 tap sinna manna gegn Frömurum í Laugardalnum í kvöld.
„Það var töluverður stígandi frá því í leiknum gegn FH og það eru hlutir sem við getum byggt ofan á og við þurfum bara að halda áfram að vinna í okkar málum“
„Fram liðið hefur sýnt það núna á undirbúningstímabilinu að þeir eru með hörku lið og við vissum það. Þeir voru að spila mjög vel, voru vel skipulagðir, duglegir og síðan alltaf hættulegir fram á við“
HK hafa enn ekki skorað í deildinni, er það eitthvað áhyggjuefni ? „ Nei, það tekur ekkert okkur úr jafnvægi þó við séum ekki enn búnir að skora, ég meina það eru tveir leikir búnir af tímabilinu og nóg af leikjum eftir. Við þurfum bara að halda áfram að vinna í okkar málum og reyna bæta það sem við þurfum að bæta, við erum alveg rólegir ennþá. “
HK mætir Keflavík í næstu umferð á heimavelli. „ Það verður erfiður leikur eins og allir leikir, við þurfum bara að undirbúa okkur vel fyrir þann leik og vonandi tekst okkur að ná stig í þeim leik og skora mörk. “
Gunnleifur Gunnleifsson markvörður og fyrirliði leiksins fór útaf í byrjun síðari hálfleiks. „ Hann tognaði á ökkla, en ég vonast til að það sé ekkert alvarlegt. En Ögmundur (Ólafsson) kom inn og stóð sig mjög vel, þannig að það verður bara að koma í ljós.“



