Njarðvík fékk í gær fínan liðsstyrk rétt fyrir lokun félagaskiptagluggans en liðið krækti í Hafstein Ingvar Rúnarsson og Albert Högna Arason.
Hafsteinn Ingvar kemur á láni frá Keflavík en hann getur leikið á kantinum og á miðjunni.
Hafsteinn Ingvar kom til Keflvíkinga frá Reyni Sandgerði í vetur en hann þekkir til hjá Njarðvík eftir að hafa leikið með liðinu í annarri deildinni 2005.
Albert Högni er reynslubolti sem getur leikið bæði í vörninni og á miðjunni en á síðustu leiktíð var hann á mála hjá ÍR. Hann æfði síðan og spilaði með Aftureldingu í vetur en hefur nú gengið til liðs við Njarðvíkinga.
Báðir leikmennirnir geta leikið sinn fyrsta leik með Njarðvík á sunnudag þegar að liðið mætir Víkingi Ólafsvík á útivelli.


