Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fös 16. maí 2008 07:07
Magnús Már Einarsson
Heimild: Heimasíða ÍA 
Skagamenn gætu mætt Man CIty í UEFA-bikarnum (Uppfært)
Skagamenn unnu sér síðastliðið haust þáttökurétt í UEFA-bikarnum en fyrsta umferðin fer fram í sumar.

Nú er að verða ljóst hvaða lið það verða sem Skagamenn gætu mætt í 1.umferðinni en dregið verður í byrjun júní.

Meðal liðanna í pottinum verður Manchester City sem fær sæti í keppninni fyrir háttvísi.

Hin liðin sem koma til greina eru Vetra Vilnius og Suduva Marijampole bæði frá Litháen. Bröndby frá Danmörku, Viking Stavanger frá Noregi, Djurgarden og Kalmar frá Svíþjóð. Haka Valkeakoski og Honka Espoo frá Finnlandi og Metalurgs frá Lettlandi. Auk þess eiga eftir að bætast við liðin sem verða í 2 og 3 sæti í dönsku deildinni.

Íslendingar eru á mála hjá Bröndby, Viking og Djurgarden en spennandi verður að sjá hvaða liði Skagamenn mæta í fyrstu umferðinni.
Slapp
banner
banner