Víkingar fengu til sín einn leikmann áður en félagaskiptaglugginn lokaði á miðnætti þegar Pétur Viðarsson kom til félagsins á láni frá bikarmeisturum FH. Á sama tíma lánuðu Víkingar Stefán Kára Sveinbjörnsson frá sér til dótturfélagsins, Berserkja, en hann hefur verið frá vegna meiðsla í vetur.
Pétur Viðarsson er 21 árs gamall varnarmaður sem var fyrirliði 2. flokks FH þar til hann gekk upp úr honum fyrir síðustu leiktíð. Hann hefur verið við nám í Bandaríkjunum en er nú kominn til Íslands og gengur í raðir 1. deildarliðs Víkings á láni.
Hann á að baki tvo leiki með meistaraflokki FH, annan í Landsbankadeildinni gegn Keflavík sumarið 2006 og hinn í VISA-bikarnum gegn ÍBV í fyrrasumar en í báðum leikjunum kom hann inná sem varamaður.
Stefán Kári Sveinbjörnsson er lánaður til Berserkja meðan hann kemst í leikform en hann hefur verið frá allt undirbúningstímabilið vegna meiðsla en er að komast á ról núna.
Hann er 22 ára gamall og lék 15 leiki með Víkingi í Landsbankadeildinni á síðustu leiktíð og skoraði í þeim eitt mark.




