ÍR fékk í gærkvöld liðsstyrk fyrir baráttuna í 2. deildinni í sumar þegar Haukur Ólafsson kom til félagins á láni frá FH en eins og við höfðum áður greint frá í gær fékk félagið einnig Jóhann Björnsson á láni frá HK.
Haukur Ólafsson er 21 árs gamall miðjumaður sem var á láni frá FH til Þróttar til mánaðarmótanna maí/júní í fyrra en þá var hann lánaður til Njarðvíkur og lék með þeim út tímabilið í 1. deildinni.
Hann lék 14 leiki með Njarðvík í 1. deildinni og skoraði í þeim tvö mörk auk þess sem hann lék einn bikarleik með liðinu.
Haukur á að baki tvo leiki með meistaraflokki FH, báðir komu þeir í Landsbankadeildinni sumarið 2006 er hann varð Íslandsmeistari með félaginu.


