Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fös 16. maí 2008 10:23
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Cristiano Ronaldo gæti hugsað sér að fara til Spánar
Cristiano Ronaldo leikmaður Manchester United segist ætla að íhuga framtíð sína hjá félaginu eftir úrslitaleik Meistaradeildarinnar í næstu viku.

Þessi 23 ára gamli Portúgali hefur farið á kostum og skorað 41 mark á leiktíðinni en hann hefur verið orðaður við Real Madrid.

,,Ég er mjög ánægður hér en sjáum hvað gerist eftir úrslitaleik Meistaradeildarinar," sagði Ronaldo við spænska sjónvarpsstöð.

,,Mér líður eins og heima hér. Ég hef verið hér í fimm ár en í framtíðinni, við munum sjá til. Ég hef sagt milljón sinnum að ég hafi áhuga á að spila á Spáni en að dreyma er eitt, raunveruleikinn er annað," sagði Ronaldo.

Það verður að telja ólíklegt að Manchester United sé tilbúið að láta Ronaldo fara en Real Madrid hefur lengi haft augastað á leikmanninum og Bernd Scuhster þjálfari liðsins hefur meðal annars sagt að Ronaldo sé besti leikmaður í heimi.
Slapp
banner