Heimild: BBC
Sammy Lee hefur verið ráðinn aðstoðarstjóri hjá Liverpool og mun hann því vinna við hlið Rafa Benitez hjá félaginu.
Benitez hefur ekki haft neinn aðstoðarmann síðan Pako Ayesteran yfirgaf félagið í ágúst en Alex Miller, aðalliðsþjálfari, var í því að aðstoða Spánverjarnn þar til hann tók við japanska liðinu JEF United í síðustu viku.
Sammy Lee, sem er 49 ára, tók við Bolton síðastliðið sumar en hann fékk síðan að fjúka í október eftir lélegt gengi.
Lee þekkir vel til hjá Liverpool en hann lék með liðinu í fjölda ára og þjálfaði síðar varaliðið auk þess að vera einn af þjálfurunum hjá aðalliðinu.




