Þá er komið að Powerade-slúðrinu í dag en það er ýmislegt slúðrað í ensku blöðunum í dag. Kíkjum á það helsta en pakkinn er gerður með hjálp frá BBC.
Ricardo Carvalho varnarmaður Chelsea segir óvíst hvort hann verði áfram hjá félaginu á næsta tímabili (Ýmsir miðlar)
Hollenska liðið Feyenoord heufr áhuga á Tal Ben Haim miðverði Chelsea. (Daily Express)
Thaksin Shinawatra, eigandi Manchester City, hefur sett allan leikmannahóp liðsins á sölu. (Daily Express)
Cesc Fabregas miðjumaður Arsenal segist ekki hafa í hyggju að ganga til liðs við Real Madrid. (Daily Express)
Arsene Wenger stjóri Arsenal hefur áhuga á franska varnarmanninum reyndar Lilian Thuram. (Daily Star)
Gareth Southgate stjóri Middlesbrough er til í að borga sex milljónir punda til að fá Steve Sidwell miðjumann Chelsea. (Daily Mirror)
West Ham hefur boðið fimm milljónir punda í Richard Dunne varnarmann Manchester City. (Daily Mirror)
Martin O'Neill stjóri Aston Villa ætlar að bjóða fjórar milljónir punda í Kevin Doyle framherja Reading. (Mirror)
Portsmouth á í viðræðum við Liverpool um að fá Peter Crouch á fimmtán milljónir punda. (The Times)
Cardiff er tilbúið að selja undrabarnið Aaron Ramsey fyrir rétta upphæð. (Daily Telegraph)
Nottingham Forest gæti reynt að fá James Beattie á fjórar milljónir punda. (Daily Mail)
Scott Carson markvörður Liverpool vill að félagið lækki verðmiðann á sér en sem stendur er hann tíu milljónir punda. (The Sun)
Harry Redknapp stjóri Portsmouth fær 750 þúsund pund ef hann stýrir liðinu til sigurs í enska bikarnum. (Daily Star)
Arsenal ætlar að verðlauna Cesc Fabregas, Emmanuel Adebayor, Gael Clichy og Bacary Sagna með nýjum og betri samningum. (Daily Telegraph)
Avram Grant stjóra Chelsea verður refsað fyrir ummæli sín um Steve Bennett dómara. (The Sun)



