2.deildarlið Hamars fékk nokkra nýja leikmenn til liðs við sig áður en félagaskiptaglugginn lokaði í gær.
Markvörðurinn Robert Mitrovic, sem hefur leikið með liðinu undanfarin tvö ár, er kominn aftur til Hvergerðinga og þá fékk félagið þá Mikic Predrag, Milan Djurovic og miðjumanninn Milan Nikolic.
Djurovic er sóknarmaður sem lék með Hvöt síðastliðið sumar en hann var áður á mála hjá Tindastól og Neista Hofsósi.
Þá fengu Hamarsmenn einnig miðjumanninn Stefán Daníel Jónsson á láni frá Stjörnunni.
Hamarsmenn eru nýliðar í annarri deild en liðið mætir Reyni Sandgerði í fyrstu umferðinni í kvöld.



