Heimild: Sky
Cristiano Ronaldo var í gær valin bestir leikmaður Englands af blaðamönnum þar í landi en hann hefur verið að sanka að sér verðlaunum undanfarið.
Bæði Avram Grant stjóri Chelsea og Sir Alex Ferguson stjóri Manchester United mættu til að horfa.
,,Ég er mjög glaður með að vinna þessi verðlaun, það er mér mjög mikilvægt að vinna aftur en það mikilvægasta er að vinna fyrir liðið," sagði Ronaldo.
,,Ég vil ennþá vinna meira og halda áfram svona ég mun ekki hætta þótt ég sé að vinna verðlaun."
,,Á næstu leiktíð mun ég reyna að gera mitt besta aftur, ég hef bætt mig á hverri leiktíð og mun reyna að gera það á næstu leiktíð. Ég nýt þess að spila og vill halda áfram," sagði Ronaldo.



