Heimild: Sky
Owen Hargreaves leikmaður Manchester United og enska landsliðsins segir að David Beckham eigi vel heima i landsliðinu næstu árin.
,,Ég er aðdándi Becks, hann er besti sendingarmaður sem ég hef á ævinni minni spilað með," sagði Hargreaves.
,,Það er alltaf pláss fyrir leikmann eins og hann, hann bætir hvert einasta leik, ekki bara fótboltalega séð heldur líka sem persóna."
,,Það er frábært að vera í kringum hann og hann er reyndur á þessu stigi, hann hefur afrekað mikið."
,,Hvort sem hann byrjar eða ekki þá er hann alltaf mikilvægur fyrir liðið," sagði Hargreaves.


