Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fös 16. maí 2008 12:40
Hörður Snævar Jónsson
Landsbankadeild: Lið og uppgjör umferðarinnar
Pálmi Rafn og Bjarni Ólafur eru báðir í liði umferðarinnar
Pálmi Rafn og Bjarni Ólafur eru báðir í liði umferðarinnar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Við hér á Fótbolta.net munum eftir hverja umferð í Landsbankadeild karla velja lið umferðarinnar ásamt því að fara yfir eftirminnilegustu atvikin. Hér að neðan má sjá það sem okkur fannst um 2. umferðina sem fram fór á miðvikudag og fimmtudag.


Leikur umferðarinnar Fjölnir - KR
Stemmningin á Fjölnisvelli var frábær en þetta var fyrsti heimaleikur liðsins í efstu deild. Káramenn stuðningsmenn Fjölnis voru frábærir allan leikinn og studdu sitt lið vel. Ekki skemmdi fyrir að sigurmarkið kom í uppbótartíma og það var úr vítaspyrnu .

Mark umferðarinnar Pálmi Rafn Pálmason - Val
Pálmi skoraði þrjú mörk í leiknum en það fallegasta var númer tvö þegar hann sendi á Helga Sigurðsson sem sendi aftur á Pálma sem lék á varnarmann Grindavíkur og skoraði svo með góðu skoti framhjá Magnúsi Þormar markverði Grindavíkur.

Klúður umferðarinnar Atli Guðnason - FH
Hvernig gat hann klúðrað! Atli Viðar Björnsson fékk boltann úti á vinstri kanti og keyrði af stað, gaf fyrir markið þar sem Atli var með opið mark fyrir framan sig og var nánast inni í markinu en á einhvern óskiljanlegan hátt tókst honum að skjóta yfir, það átti ekki að vera hægt.

Innkoma umferðarinnar: Baldur Þórólfsson - Val
Baldur var að koma inná í sínum fyrsta leik fyrir Val í efstu deild, hann hafði ekki verið lengi inná þegar hann fékk boltann úti á kanti og gaf fyrir þar sem Pálmi Rafn Pálmason kom og stangaði knöttinn í netið.

Augnablik umferðarinnar: Sigurmark Fjölnis
Gunnar Már Guðmundsson steig á punktinn í uppbótartíma í fyrsta leik Fjölnis í efstu deild og sýndi mikið öruggi og sendi Kristján Finnbogason í vitlaust og horn og skoraði. Mikill fögnuður braust út í Grafarvogi við markið.

Ummæli umferðarinnar: Leifur Garðarsson
„,,Þetta er eitthvað augljósasta víti sem sögur fara af þegar markvörður þeirra gjörsamlega gengur frá leikmanni okkar í teignum en það féll ekki með okkur í þessum leik eins og þessi atriði sem hefðu getað breytt úrslitum þessa leiks," sagði Leifur Garðarsson þjálfari Fylkis við Fótbolta.net eftir tap liðsins gegn Keflavík
Lið umferðarinnar:



(4-4-2)
Bjarki Freyr Guðmundsson (Þróttur), Guðjón Árni Antoníusson (Keflavík), Freyr Bjarnason (FH), Dario Cingel (ÍA), Bjarni Ólafur Eiríksson (Valur), Heiðar Geir Júlíusson (Fram), Hólmar Örn Rúnarsson (Keflavík), Pálmi Rafn Pálmason (Valur) Jóhann Berg Guðmundsson (Breiðablik), Guðjón Baldvinsson (KR), Guðmundur Steinarsson (Keflavík).
Slapp
banner