Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fös 16. maí 2008 13:24
Magnús Már Einarsson
Heimild: Reuters 
EM 2008: Þjóðverjar velja leikmannahóp sinn fyrir
Joachim Loew landsliðssþjálfari Þjóðverja tilkynnti í morgun 26-manna æfingahóp fyrir EM en liðið heldur á mánudag til Mallorca í æfingabúðir. Hópurinn verður síðan minnkaður niður í 23 menn fyrir 28.maí næstkomandi.

Rene Adler markvörður Bayer Leverkusen og Marko Marin kantmaður Borussia Moenchengladbach eru báðir nýliðar í hópnum.

Adler kemur í liðið á kostnað Timo Hildebrand, markvarðar Valencia, en hann var í leikmannahópnum á HM 2006.

Marin, sem er einungis 19 ára, hefur leikið frábærlega á leiktíðinni og fær því sæti í hópnum. Þá er framherjinn reyndi Oliver Neuville óvænt í hópnum sem og David Odonkor kantmaður Real Betis.

Þjóðverjar eru í B-riðli á EM ásamt Austurríkismönnum, Króötum og Pólverjum í riðli.


Markverðir: Jens Lehmann (Arsenal), Robert Enke (Hanover 96), Rene Adler (Bayer Leverkusen)

Varnarmenn: Christoph Metzelder (Real Madrid), Per Mertesacker (Werder Bremen), Philipp Lahm (Bayern Munich), Arne Friedrich (Hertha Berlin), Marcell Jansen (Bayern Munich), Clemens Fritz (Werder Bremen), Heiko Westermann (Schalke 04)

Miðjumenn: Michael Ballack (Chelsea), Thomas Hitzlsperger (VfB Stuttgart), Simon Rolfes (Bayer Leverkusen), Torsten Frings (Werder Bremen), Bastian Schweinsteiger (Bayern Munich), Piotr Trochowski (Hamburg SV), Tim Borowski (Werder Bremen), Jermaine Jones (Schalke 04), David Odonkor (Real Betis), Marko Marin (Borussia Moenchengladbach)

Framherjar: Miroslav Klose (Bayern Munich), Lukas Podolski (Bayern Munich), Mario Gomez (VfB Stuttgart), Kevin Kuranyi (Schalke 04), Oliver Neuville (Borussia Moenchengladbach), Patrick Helmes (Köln)
Slapp
banner
banner
banner