Karin Sendel, tvítugur miðju- eða sóknarmaður er gengin til liðs við Stjörnuna. Hún er ísraelsk landsliðskona og kemur til með að auka breidd í sóknarleik liðsins.
Við heyrðum í Þorkeli Mána Péturssyni þjálfara Stjörnunnar og spurðum út í nýja leikmanninn og tímabundin félagaskipti Tinnu Mark Antonsdóttur til Hauka.
Aðspurður um nýja leikmanninn og þá ákvörðun að fá hana til liðsins svaraði Máni: „Öll lið í deildinni fyrir utan KR virðast vera flytja inn heilu gámana af erlendum leikmönnum og við gátum ekki látið okkar eftir liggja. En svona grínlaust þá er Karin Sendel ísraelskur landsliðsmaður sem spilar framarlega á miðju eða frammi. Hún kemur til með að styrkja framlínuna í liðinu . Við megum ekki við miklum skakkaföllum þar og þess vegna var brugðið á það ráð að fá 2 leikmenn til landsins. Karin og Pamelu Liddell. Hún kemur fyrst og fremst til með að auka samkeppnina.“
„Ég geri ekki ráð fyrir henni í næsta leik. En hún ætti að vera kominn í hóp fyrir leikinn gegn Aftureldingu“ svaraði Þorkell Máni aðspurður um hvort Karin næði næsta leik.
Önnur félagaskipti sem vöktu athygli eru tímabundin félagaskipti Tinnu Mark Antonsdóttur yfir í Hauka. Tinna Mark er feykilega sterkur varnarmaður en hefur lítið getað leikið með Stjörnuliðinu undanfarið vegna meiðsla.
„Tinna er að koma inn aftur eftir erfið meiðsli. Til að koma henni sem fyrst í leikform var tekin sú ákvörðun að lána hana til Haukanna. Hún kemur til með að spila þar í einhvern tíma og kemur svo aftur.“
Hjá Haukum hittir hún fyrir markmanninn Nönnu Rut Jónsdóttur og Hjördísi Hugrúnu Sigurðardóttur en þær eru einnig á láni úr Stjörnunni.
„Hún er í góðum félagskap með Nönnu og Hjördísi sem eru líka í láni hjá Haukum. Þetta lán á leikmönnum hjálpar bæði okkur og Haukum og er þessvegna bara gott mál. Ég veit líka að þessar stelpur eru í góðum höndum hjá Sveitamanninum (Guðmundi Magnússyni þjálfara). Hjá Haukunum er alltaf góð umgjörð í kringum lið og við vitum að þeir munu sjá vel um þessa leikmenn.“
Að lokum spurðum við Þorkel Mána út í fyrirhuguð félagaskipti Heiðars Austmanns í Stjörnuliðið en þau virðast ekki hafa náð í gegn fyrir lokun félagaskiptagluggans.
„Nei, því miður. Þeir gáfu okkur samt leyfi á að nota Rikka G. en hann er bara svo lélegur að ég get ekkert notað hann. En ég veit samt að hann Heiðar verður í stúkunni að hvetja mig eins og alltaf.„




