Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fös 16. maí 2008 13:17
Guðbjörg Gunnarsdóttir
Kvennalið ÍA fær liðsstyrk
Kvenaboltinn
Haraldur Sigfús þjálfari ÍA
Haraldur Sigfús þjálfari ÍA
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Marcia Rosa Silva og Olaitan Yusuf hafa fengið félagaskipti yfir til 1.deildarliðs ÍA. Silva er 26 ára varnarmaður og kemur frá Brasilíu og Yusuf er 26 ára framliggjandi miðjumaður og kemur frá Nígeríu. Hinn gamalkunni markvörður Steindóra Sigríður Steinsdóttir hefur einnig ákveðið að vera með liðinu í sumar.

Marcia Rosa Silva spilaði í MMC háskólanum í Bandaríkjunum og var meðal annars valin besti varnarmaður úrslitakeppninnar og í lið ársins. Silva er komin til landsins og spilaði meðal annars æfingaleik með ÍA gegn 2.flokki Vals sem endaði 6-6.
Olaitan Yusuf er framliggjandi miðjumaður frá Nígeríu en er ekki komin til landsins. Hún hefur þó fengið félagaskipti í ÍA enda lokaði félagaskiptaglugginn í gær, 15.maí.

Steindóra Sigríður Steinsdóttir markvörður hefur einnig ákveðið að vera með liðinu í sumar. Steindóra er 36 ára markvörður en hún á að baki 6 A landsleiki fyrir Íslands hönd.

Þjálfari ÍA er Haraldur Sigfús Magnússon. Við spurðum Harald út í nýju leikmennina: ,,Marcia Rosa Silva kom í síðustu viku og lofar mjög góðu. Hún spilaði með okkur í æfingaleik við 2.flokk Vals sem endaði 6-6 og stóð sig virkilega vel. Olaitan Silva Yusuf er ekki komin en félagaskiptin eru komin í gegn. Allir pappírarnir hennar eru komnir í gegn en hún er ekki komin með atvinnuleyfi ennþá og þess vegna er hún ekki ennþá komin til landsins. Við vonum að þetta fari að ganga í gegn en búumst samt ekki við henni fyrr en um mánaðarmót.“

,,Marcia Rosa Silva var klassanum betri en allar aðrar í æfingaleiknum og hún virðist í mjög góðu standi. Ég hef ekki séð Olaitan Silva Yusuf en hún hefur góð meðmæli. Gareth (Gareth O’Sullivan þjálfari Aftureldingar) hjálpaði mér að finna þessa leikmenn. Hann ætlaði sér að fá Yusuf en var búinn að fylla kvótann af erlendum leikmönnum og ég gat því fengið hana. Ég hef heyrt að hún sé mjög góður leikmaður.”


Aðspurður um hvort að leikmennirnir komi til með að styrkja hópinn mikið sagði Haraldur: ,,Dódó (Steindóra Sigríður Steinsdóttir) er síðan komin aftur hún er svona gömul/ný. Hún verður varamarkmaður en það er frábært að fá svona reynslumikinn leikmann inní hópinn. Það gefur hinum markmanninum mikið að hafa leikmann eins og Dódó með sér á æfingum.”

Við spurðum Harald hvernig hópurinn væri skipaður ,,Við erum með 24-5 stelpur í öðrum og meistarflokki. Við erum í samstarfi við Aftureldingu um 2.flokkinn og liðin spila saman þar.

ÍA spilar sinn fyrsta leik í Íslandsmótinu 24.maí við ÍBV á Hásteinsvelli. ,,Marcia Rosa Silva mun spila með en Olaitan Yusuf er ekki komin til landsins og því miður er ólíklegt að hún nái þeim leik”

Að lokum spurði Fótbolti.net Harald hvort að stefnan væri sett á Landsbankadeildina á næsta ári . ,,Ekki í ár, við erum með sterka yngri flokka og sérstaklega árganginn 1993 og erum að bíða eftir þeim stelpum. Við viljum byggja upp gott lið með sterkan kjarna áður en við förum aftur í efstu deild. En ef sú staða kæmi upp í haust að við erum í sénsi að komast í Landsbankadeildina þá að sjálfsögðu myndum við reyna það”
Slapp
banner
banner