Fyrr í vikunni skrifaði bandarískur miðjumaður, Daniel Jones, undir samning við 1.deildarlið Hauka. Jones er 23 ára og leikur með sama háskólaliði og Philip Fritschmann sem gekk í raðir Hauka fyrir tímabilið.
Jones fékk leikheimild í gærdag og er því löglegur með Haukum á sunnudaginn, er þeir heimsækja Fjarðabyggð fyrir austan.
Haukar sem eru nýliðar í 1.deildinni gerðu jafntefli við Víking Ólafsvík í 1.umferðinni 1-1, en Haukum er spáð ofarlega í 1.deildinni í sumar.
Haukarnir hafa verið að fá liðstyrk undanfarna daga, en rétt fyrir mót fengu þeir Guðmund Kristjánsson miðjumann frá Breiðablik á láni og svo í gær skrifaði Hilmar Trausti Arnarsson undir samning við Hauka frá Leikni en Hilmar er uppalinn hjá Haukum.
Aftur á móti er ekki öruggt að Marco Kirsch, þýskur miðjumaður sem leikur einnig með sama háskóla liði og Philip og Daniel komi til Hauka í sumar.



