Heimild: Bold.dk
Forráðamenn Viborg eru ekki á þeim buxunum að selja Rúrik Gíslason sem hefur þótt spila frábærlega í síðustu leikjum liðsins í dönsku úrvalsdeildinni.
Nokkur félög hafa borið víurnar í Rúrik, sem skoraði t.a.m. gegn Bröndby og Lyngby í síðustu tveimur leikjum liðsins, en Steffen Höjer, yfirmaður íþróttamála hjá Viborg, segir hann einfaldlega ekki til sölu.
,,Það hafa engin tilboð borist í hann enn sem komið er. Rúrik er ótrúlega mikilvægur leikmaður upp á framtíðina að gera og er einn af þeim sem við viljum byggja liðið í kringum,” sagði Höjer í samtali við danska íþróttavefmiðilinn Bold.dk.
Viborg er þegar fallið úr deildinni, þrátt fyrir að tvær umferðir séu eftir, og því gæti það reynst liðinu erfitt að halda leikmanninum berist gott tilboð í hann.



