Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fös 16. maí 2008 14:03
Magnús Már Einarsson
Heimild: Reuters 
Michael Laudrup hættir með Getafe í sumar
Michael Laudrup mun hætta sem þjálfari Getafe í lok tímabilsins en hann greindi frá þessari ákvörðun sinni á fréttamannafundi í dag.

,,Tími minn hjá félaginu er kominn á enda," sagði Laudrup á fréttamannafundi í dag en hann kom liðinu í 8-liða úrslit Evrópukeppni Félagsliða og úrslitaleik spænska bikarsins í ár. Þá er liðið með öruggt sæti í úrvalsdeildinni þegar ein umferð er eftir.

,,Ég kem með þessa yfirlýsingu svo að félagið eigi möguleika á að finna eftirmann og þá vil ég þakka þeim fyrir að hafa gefið mér þetta tækifæri."

Laudrup tók við Getafe af Bernd Scuhster síðastliðið sumar en þessi knái Dani lék á sínum tíma með Barcelona og Real Madrid á Spáni.

Undanfarið hefur hann verið orðaður við þjálfarastöðu hjá nokkrum liðum og meðal annars hafa verið sögusagnir um að Chelsea vilji fá hann til starfa.
Slapp
banner