Heimild: BBC
Manchester City mun spila á næstu leiktíð í Evrópukeppni félagsliða fá næstu leiktíð.
City var eitt af prúðustu liðunum í ensku úrvalsdeildinni í vetur en liðin sem voru prúðari höfðu öll tryggt sér sæti í Evrópukeppni.
City mun koma inn í 1. umferð þar sem liðið gæti mætt Skagamönnum.
,,Þetta er eins og draumur sem er að rætast," sagði Sven Goran Eriksson stjóri City en staða hans hjá félaginu er í óvissu.
,,Okkar draumur um að spila í Evrópu hefur verið mikill alla þessa leiktíð."




