Heimild: Sky
Patrice Evra leikmaður Manchester United ætlar ekki að hugsa um nýjan samning fyrr en eftir úrslitaleik liðsins í Meistaradeild Evrópu.
Samningur Evra rennur út eftir næstu leiktíð en hann kom til liðsins árið 2006.
,,Þegar ég kom hingað sagði fólk mér að fótboltinn hérna væri bara að sparka boltanum fram en núna geri ég grín af því af því að hér er besti fótbolti í heimi," sagði Evra.
,,Ég á eitt ár eftir af samningi mínum en núna er ég bara að einbeita mér að úrslitunum. Ég er með umboðsmann og Manchester United veit stöðu mína, það verður fundur en núna hugsa ég bara um úrslitin."
,,Eftir það sjáum við hvað gerist, það væri erfitt að fara frá félaginu en í fótboltanum veistu aldrei," sagði Evra.




