Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fös 16. maí 2008 15:01
Hörður Snævar Jónsson
Heimild: Heimasíða Vals 
Barry Smith byrjaður að æfa með Val að nýju
Barry Smith hreinsar frá marki á síðustu leiktíð.
Barry Smith hreinsar frá marki á síðustu leiktíð.
Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Barry Smith leikmaður Vals hefur hafið æfingar með liðinu en hann tók þátt í æfingu liðsins í gær.

Barry Smith skrifaði undir nýjan samning við Val fyrir stuttu og mun leika með liðinu á þessari leiktíð en FH-ingar reyndu líka að fá hann.

„Hann fór í hné aðgerð. Það var verið að hreinsa liðþófa og brjóskeyðingu. Þetta hefðbundna þegar menn eru komnir á þennan aldur,“ sagði Willum í samtali við heimasíðu félagsins

„Hann var aðeins með á æfingunni á fimmtudaginn. Hann er svo grimmur kallinn. Hann getur pínt sig alveg óheyrilega."

„Við verðum með morgunæfingu á laugardag. Þétt æfing þar sem tekið verður aðeins á. Svo förum við í skipulagið. Sunnudagurinn verður því nýttur í taktík," sagði Willum við heimasíðu félagsins.

Valsarar unnu Grindavík á miðvikudag 3-0 þar sem Pálmi Rafn Pálmason skoraði öll mörk liðsins.
Slapp
banner
banner
banner