Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fös 16. maí 2008 15:37
Hafliði Breiðfjörð
Enn fleiri leikir á Íslandsmótinu færðir inn í hús
Kvenaboltinn
Eyjamenn þurfa að leika innandyra gegn Þór á Akureyri.
Eyjamenn þurfa að leika innandyra gegn Þór á Akureyri.
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Þrír leikir til viðbótar á Íslandsmótinu í knattspyrnu hafa verið færðir inn í hús en um er að ræða tvo leiki í Landsbankadeild kvenna og einn í 1. deild karla.

Íslandsmeistarar Vals í kvennaflokki munu leika sinn annan heimaleikinn í röð innandyra í Egilshöll í Grafarvogi en þær taka á móti HK/Víking á sunnudagskvöld og höfðu áður leikið gegn Þór/KA á sama stað.

Bikarmeistarar KR í kvennaflokki þurfa einnig að leika innandyra þegar þær sækja Þór/KA heim í Bogann á Akureyri á mánudagskvöldið klukkan 19:15.

Þriðji leikurinn er svo viðureign 1. deildarliðs Þórs í karlaflokki gegn ÍBV sem fer fram á sunnudag klukkan 14:00 en hann er einnig leikinn í Boganum. Um er að ræða þriðja leikinn í 1. deild sem fer fram í Boganum. Áður höfðu KA - Fjarðabyggð og Þór - KS/Leiftur farið fram þar.
Slapp
banner
banner