Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fös 16. maí 2008 16:12
Hörður Snævar Jónsson
Hermann Hreiðarsson: Aldrei talið neitt að vera sterkari á pappírunum
Hermann Hreiðarsson leikmaður Portsmouth segir leik liðsins gegn Cardiff í úrslitum enska bikarsins á morgun þann stærsta á ferli sínum en leikurinn fer fram á Wembley.

,,Það er bara kominn spenna, menn eru vel gíraðir fyrir leikinn og vel undirbúnir. Það fara að styttast í þetta og menn eru fullir tilhlökkunar," sagði Hermann þegar Fótbolti.net heyrði í honum í dag en hann var staddur á hóteli í Lundúnum.

Þetta er án nokkurs vafa stærsti leikur Hermanns á ferlinum en þetta er í fyrsta skiptið sem hann kemst í úrslitaleik enska bikarsins.

,,Þetta er sá stærsti það er engin spurning um það," sagði Hermann sem segir stemmninguna í hópnum góða fyrir leikinn.

,,Það er án efa gríðarleg stemmning í hópnum og er búið að vera í svolítinn tíma, við erum búnir að vita af þessu í langan tíma og núna er loksins komið að þessu."

Hann segir að þetta hafi ekki haft áhrif á þá í ensku úrvalsdeildinni en liðið endaði í áttunda sæti.

,,Þú getur aldrei notað þá afsökun,, menn vita af þessum leik en við vorum í 5 til 6 sæti í deildinni nánast alla leiktíðina en enduðum í áttunda sem er svo sem ekkert hræðilegt en auðvitað ætla menn að enda ofar og sjötta sætið var þarna."

,,Það er ekkert hundrað í hættunni ennþá, þetta var mjög gott tímabil hjá okkur og við getum gert það frábært á morgun."


Hermann segir það frábært að spila á Wembley en Harry Redknapp stjóri liðsins á þó eftir að tilkynna byrjunarliðið en ef að lítum lætur má búast við Hermanni í vörn liðsins.

,,Hann á eftir að tilkynna liðið en það er frábært að fá að upplifa Wembley aftur," sagði Hermann í léttum tónum og sagði stemmninguna mikla á meðal stuðningsmanna liðsins fyrir leikinn.

,,Það er engin vafi á því og allir eru nokkuð meðvitaðir upp þetta, úrslitaleikurinn í ár er svolítið öðruvísi það er ekkert af þessum tveimur af stóru fjórum."

,,Það er ekkert vanmat, við vitum nákvæmlega hvernig þessi bikar hefur spilast og það hefur aldrei talið neitt að vera sterkari á pappírunum það er bara dagsformið og við verðum að vera í góðu standi,"
sagði Hermann að lokum í samtali við Fótbolta.net.
Slapp
banner