Gunnleifur Gunnleifsson markvörður og fyrirliði HK vonast til að verða orðinn klár í slaginn fyrir leikinn gegn Keflavík á mánudagskvöld.
Gunnleifur varð að fara meiddur af velli gegn Fram í gær en hann vonast til að verða klár í slaginn á mánudag.
,,Við verðum að sjá hvernig helgin verður og svo sjáum til á leikdag á mánudag," sagði Gunnleifur við Fótbolta.net.
,,Þetta er ekkert meira en tognun og þetta er á einangruðum stað sem er betra þannig að vonandi verður þetta í lagi á mánudaginn. Við erum nokkuð bjartsýnir," sagði Gunnleifur.
Ögmundur Ólafsson stóð vaktina í markinu eftir að Gunnleifur fór af velli í gær en hann kom til HK frá Stjörnunni skömmu fyrir mót.


