Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fös 16. maí 2008 17:32
Hafliði Breiðfjörð
Myndaveisla úr leikjum 2. umferðar Landsbankadeildar
Önnur umferð Landsbankadeildar karla fór fram í gær og í fyrrakvöld þegar sex leikir fóru fram. Ljósmyndarar okkar mættu á alla velli og tóku myndirnar sem má sjá hér að neðan.

Haflið Breiðfjörð var í Kaplakrika, Jón Steinarr í Grafarvogi, Tomasz Þór Veruson í Kópavogi, Andri Janusson í Laugardalnum og Víkurfréttir í Keflavík í gærkvöld og í fyrrakvöld var Hafliði Breiðfjörð með myndavélina á lofti á leik Vals og Grindavíkur.


Guðjón Þórðarson og Heimir Guðjónsson voru glaðir í bragði fyrir leik FH og ÍA.


Guðjón gat hinsvegar ekki verið sáttur við úrslitin því hans menn töpuðu 2-0.


Atli Viðar Björnsson og Atli Guðnason trúa því vart að sá síðarnefndi hafi misnotað dauðafæri.


Stuðningsmenn ÍA lyftu spjöldum eins og dómarinn.


Jóhannes Valgeirsson sýnir skemmtileg svipbrigði.


Helgi Pétur Magnússon og Tryggvi Guðmundsson í skallabaráttu.


Guðjón Baldvinsson fagnar marki sínu gegn Fjölni fyrir framan 2000 manns á Fjölnisvelli.


Óli Stefán Flóventsson stöðvar Guðjón Baldvinsson.


Gunnar Valur Gunnarsson og Björgólfur Takefusa og Kristján Hauksson er tilbúinn að grípa inní.


Kristján greip svo inní og kom boltanum frá.


Gunnar Valur skallar frá áður en Björólfur nær til boltans.


Gunnar Örn Jónsson með boltan.


Arnór Sveinn Aðalsteinsson fellur í leik Breiðabliks og Þróttar.


Dennis Danry vaktar Prince Rajcomar.


Danry stöðvar Rajcomar.


Jóhann Berg Guðmundsson átti góðan leik með Breiðablik, hér reynir Rafn Andri Haraldsson að stöðva hann.


Magnús Páll Gunnarsson framherji Breiðabliks liggur eftir.


Barátta í teignum.


Ívar Björnsson og Aron Palomares í leik Fram og HK.


Halldór Hermann Jónsson leikmaður Fram reynir að ná til boltans.


Gunnleifur Gunnleifsson markvörður HK þurfti að fara snemma af velli.


Hjálmar Þórarinsson einbeittur á svip.


Mitja Brulc og Ingvar Ólason reyna að skalla boltann.


Heiðar Geir Júlíusson.


Pálmi Rafn Pálmason fagnar fyrsta marki sínu gegn Grindavík ásamt Bjarna Ólafi Eiríkssyni.


Helgi Sigurðsson framherji Vals reynir að ná til knattarins.


Scott Ramsay hefur farið á kostum í upphafi tímabilsins, hér reynir Bjarni Ólafur að stöðva hann.


Guðmundur Benediktsson og Sveinn Þór Steingrímsson þurftu að sparka hátt til að ná í þennan bolta.


Zoran Stamenic kemur boltanum frá áður en Helgi Sigurðsson nær til hans.


Valsmenn fagna í fyrrakvöld.


Simun Samuelsen skallar boltann í viðureign Keflavíkur og Fylkis og Ian Jeffs fylgist með.


Guðni Rúnar Helgason spyrnir boltanum.


Guðjón Árni Antoníusson og Víðir Leifsson í baráttunni.


Garðar Örn Hinriksso sem dæmdi leikinn.
Slapp
banner
banner
banner