Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fös 16. maí 2008 17:15
Hörður Snævar Jónsson
Heimild: Sky 
Wenger vonast eftir því að fá atvinnuleyfi fyrir Vela
Arsene Wenger stjóri Arsenal vonast eftir því að fá atvinnuleyfi fyrir Carlos Vela.

Vela er nú á láni hjá Osasuna á Spáni en hann skrifaði undir samning við Arsenal í byrjun ársins 2007.

,,Við höfum óskað eftir atvinnuleyfi fyrir hann og hann mun vera hluti af aðalliði okkar á næstu leiktíð," sagði Wenger.

,,Hann hefur spilað alla leiktíðina með Osasuna á vinstri kantinum og hefur lagt hart að sér þar, fyrir mér er það ekki hans staða, hann er framherja, svipuð týpa og Eduardo," sagði Wenger.
Slapp
banner