Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fös 16. maí 2008 17:33
Hörður Snævar Jónsson
Heimild: Sporting Life 
Grant þarf að útskýra orð sín í garð dómara
Enska knattspyrnusambandið hefur beðið Avram Grant stjóra Chelsea um að útskýra orð sín í garð Steve Bennett.

Bennett dæmdi leik Manchester United og Wigan þar sem United tryggði sér sigur í ensku úrvalsdeildinni.

,,Ég sagði ykkur það að ég trúði á að það væri samsæri í enskum fótbolta, ég mun ekki gera neitt í þessu en það sem gerðist var það sem ég átti von á," sagði Grant.

,,Á Englandi eru nokkrir góðir dómarar en það eru nokkrir sem bogna undan pressu eins og við sáum."

,,Ég held að í leiknum gegn Manchester United þá hafi dómarinn orðið fyrir áhrifum og það hafði áhrif á úrslitin fyrir okkur, við vitum það."

,,Ég held að rauða spjaldið sem John Obi Mikel hafi ekki átt að fá rautt spjald í þeim, ég held að Paul Scholes hafi átt að fá rautt spjald á sunnudaginn og að Wigan hafi átt að fá víti en þetta er búið og ég óska Manchester United til hamingju,"
sagði Grant sem hefur frest til 28. maí til að svara enska sambandinu.
Slapp
banner
banner
banner