Framherjinn Garðar Jóhannsson stal senunni á meðal Íslendinganna í norsku úrvalsdeildinni þegar hann skoraði tvö mörk og lagði upp önnur tvö í 5-0 sigri Fredrikstad á Haraldi Guðmundssyni og félögum í Álasundi í dag.
Þá krækti Gylfi Einarsson, miðvallarleikmaður Brann, í sitt þriðja gula spjald á tímabilinu í leiknum gegn Vålerenga sem veldur því að hann verður í banni í næsta leik liðsins sem verður gegn Viking um aðra helgi.
Lyn 0 - 2 Stabæk
0-1 D. Nannskog ('51)
0-2 J. Andersson ('90)
Theodór Elmar Bjarnason og Indriði Sigurðsson voru báðir í byrjunarliði Lyn en Theodóri var skipt út af um miðbik seinni hálfleiksins. Veigar Páll Gunnarsson spilaði allan leikinn fyrir Stabæk og lagði upp síðara mark liðsins.
Fredrikstad 5 - 0 Álasund
1-0 Wallace ('29)
2-0 Garðar Jóhannsson ('39)
3-0 Garðar Jóhannsson ('45)
4-0 T. Elyounoussi ('70)
5-0 A. Barsom ('75)
Garðar Jóhannsson var í byrjunarliði Fredrikstad en var skipt út af á 82. mínútu. Haraldur Guðmundsson spilaði allan leikinn fyrir Álasund.
Molde 2 - 3 Viking
1-0 José Mota ('74)
1-1 M. Fillo ('76)
1-2 A. Velicka ('82)
2-2 José Mota ('85)
2-3 M. Fillo ('88)
Rosenborg 4 - 0 Lilleström
1-0 M. Sapara ('23)
2-0 P. Skjelbred ('52)
3-0 S. Iversen ('55)
4-0 Y. Koné ('66)
Bodö/Glimt 2 - 0 Tromsö
1-0 Thiago Martins ('32)
2-0 T. Olsen ('90)
Birkir Bjarnason kom inn á sem varamaður í hálfleik fyrir Bodö/Glimt.
Brann 1 - 0 Vålerenga
1-0 T. Helstad ('77)
Kristján Örn Sigurðsson spilaði allan leikinn fyrir Brann. Gylfi Einarsson var sömuleiðis í byrjunarliðinu en var skipt af velli á 86. mínútu. Ólafur Örn Bjarnason var í leikmannahópi Brann en kom ekki við sögu. Gunnar Heiðar Þorvaldsson sat allan leikinn á varamannabekk Vålerenga.



