Jafnt í Garðinum og á Ásvöllum
Anton Ingi Sigurðsson og Stefán Örn Arnarsson sem hér sjást á myndinni skoruðu báðir fyrir Reyni Sandgerði í kvöld en myndirn er úr leik liðsins gegn Hamar í Hveragerði.
Fyrsta umferð 2. deildar karla var öll leikin í kvöld þar sem liðinu sem er spáð sigri í ár, ÍR, tókst að landa sigri á heimavelli sínum í Breiðholti er þeir lögðu Gróttu 2-0. Hvöt lagði Völsung í sjö marka leik, Tindastóll gerði góða ferð á Grenivík og lagði Magna 0-2 í leik sem var á möl og Reynir Sandgerði vann Hamar í Hveragerði 2-3. Kíkjum á umfjallanir um leikina.
ÍR afgreiddi Gróttu í fyrri hálfleik
ÍR 2-0 Grótta:
1-0 Árni Freyr Guðnason ('42)
2-0 Elías Ingi Árnason ('44)
ÍR-ingar fengu Gróttu í heimsókn í Breiðholtið í kvöld og unnu verðskuldaðan 2-0 sigur í fyrsta leik ársins hjá liðunum.
ÍR-ingar fengu gullið tækifæri til að komast yfir í leiknum eftir aðeins sex mínútur þegar Magnús Jónsson braut á Birni Viðari Ásbjörnssyni innan vítateigs og Örvar Sær Gíslason dæmdi vítaspyrnu.
Gunnar Hilmar Kristinsson fór á punktinn en Ögmundur Viðar Rúnarsson markvörður Gróttu gerði sér lítið fyrir og varði frá honum.
ÍR var sterkara liðið í leiknum og komst yfir á 42. mínútu. Þar var að verki Árni Freyr Guðnason með góðum skalla í vítateignum eftir sendingu frá vinstri kanti en hann átti mjög góðan leik í liði ÍR.
Tveimur mínútum síðar bætti varamaðurinn Elías Ingi Árnason svo öðru marki. Björn Viðar Ásbjörnsson stangaði þá boltann fyrir fætur hans í þann mund er Ögmundur var kominn út úr markinu til að ná til boltans. Boltinn fór fyrir fætur Elíasar sem átti auðvelt með að renna honum í netið.
Fleiri urðu mörkin ekki í leiknum en ÍR-ingar voru miklu sterkari í síðari hálfleiknum og fengu nokkur mjög góð tækifæri til að bæta við mörkum en allt kom fyrir ekki. Grótta átti nokkrar skyndisóknir en aldrei skapaðist nein alvöru hætta.
Jafnt í hörkuleik í Garðinum
Víðir 1-1 Höttur:
0-1 Jón Karlsson (5)
1-1 Knútur Rúnar Jónsson (18)
Víðir og Höttur gerðu 1-1 jafntefli í Garðinum í kvöld en þessum liðum er spáð öðru og þriðja sætinu í deildinni í sumar.
Hattarmenn lágu frekar aftarlega í leiknum en þeir náðu forystunni eftir einungis fimm mínútna leik.
Jón Karlsson fékk þá sendingu frá Stefáni Eyjólfssyni, lék á varnarmann með því að "taka skæri" og skoraði með skoti í fjærhornið. Víðismenn lögðu ekki árar í bát og þeir jöfnuðu á 18.mínútu.
Eftir aukaspyrnu við miðjuna kom boltinn inn á teiginn þar sem fyrirliðinn Knútur Rúnar Jónsson stökk manna hæst og skallaði í netið. Fleiri urðu mörkin ekki og lokatölur í Garðinum 1-1.
Sigur hjá Hvöt í markaleik:
Hvöt 4-3 Völsungur:
0-1 Elfar Árni Aðalsteinsson
1-1 Frosti Bjarnason
2-1 Sjálfsmark
3-1 Óskar Vignisson
4-1 Ragnar Heimir Gunnarsson
4-2 Kristján Gunnar Óskarsson (víti)
4-3 Bjarki Baldvinsson
Hvöt var að leika sinn fyrsta leik í annarri deild síðan árið 1989 og liðið gat komist yfir snemma leiks þegar að Óskar Snær Vignisson slapp í gegn en Björn Hákon Sveinsson í marki gestanna varði vel.
Elfar Árni Aðalsteinsson, efnilegur framherji, kom Völsungi síðan yfir skömmu síðar en leikmenn Hvatar lögðu ekki árar í bát og voru fljótt komnir í 2-1.
Frosti Bjarnason, sem átti góðan leik í kvöld, skoraði fyrst með skalla eftir hornspyrnu og skömmu síðar kom annað mark eftir hornspyrnu en þá varð leikmaður Völsungs fyrir því óláni að skora sjálfsmark.
Í upphafi síðari hálfleiks slapp Óskar Snær í gegn og skoraði með þrumuskoti á nærstöng og kom Hvöt þannig í 3-1.
Eftir um það bil klukkutíma leik juku Hvatar menn forskot sitt þegar að Ragnar Heimir Gunnarsson skoraði með bylmingsskoti úr aukaspyrnu.
Leikmenn Völsungs gáfust ekki upp og Kristján Gunnar Óskarsson minnkaði muninn úr vítaspyrnu sem var dæmd á Nezir Ohran markvörð Hvatar. Bjarki Baldvinsson slapp síðan í gegn og minnkaði muninn í 4-3 en nær komust Húsvíkingar ekki og lokatölur á Blönduósi 4-3 heimamönnum í vil.
Ummæli eftir leik:
Kristján Óli Sigurðsson þjálfari Hvatar:
,,Það er gott að byrja á þremur stigum. Spilamennskan hefur oft verið betri en við erum náttúrulega nýkomnir á gras og þetta á bara eftir að batna. Varnarlínan hefur aldrei spilað áður saman þannig að það er skiljanlegt að það séu byrjunarörðuleikar."
,,Þetta verður bara spennandi. Næsti leikur er alvöruleikur á móti toppliði ÍR. Þrjú stig þar og við erum komnir á fljúgandi ferð."
Dramatík í lokin á Ásvöllum
ÍH 2-2 Afturelding
1-0 Ómar Bendtsen ('63)
1-1 Paul Clapson ('65, víti)
1-2 Gestur Ingi Harðarson ('83)
2-2 Mikel Herrero Idigoras ('87)
ÍH og Afturelding mættust á grasvellinum að Ásvöllum í kvöld en völlurinn kemur ekki ýkja vel undan vetri og reyndist leikmönnum oft erfiður.
ÍH átti nokkrar álitlegar sóknir í fyrri hálfleik en liðið lék þá með smá golu í bakið. Næst því að skora komst liðið þegar að boltinn fór í slánna eftir hornspyrnu en staðan í leikhléi var markalust.
Í síðari hálfleik voru leikmenn Aftureldingar ögn sterkari til að byrja með en það voru hins vegar leikmenn ÍH sem komust yfir. Gamli refurinn Ómar Bendtsen, sem var nýkominn inn á sem varamaður, lék þá á varnarmann og skoraði með bylmingsskoti í stöng og inn af 25 metra færi, frábært mark!
Skömmu síðar fengu leikmenn Aftureldingar vítapsyrnu þegar að aðstoðardómarinn flaggaði til merkis um brot á Paul Clapson. Englendingurinn fór sjálfur á punktinn og jafnaði 1-1.
Á 83.mínútu komst Afturelding síðan yfir. Gestur Ingi Harðarson átti lága fyrirgjöf frá vinstri og boltinn sigldi framhjá öllum í teignum og í fjærhornið, skondið mark.
Fjórum mínútum síðar jöfnuðu leikmenn ÍH. Fyrirgjöf frá vinstri var framlengd á fjærstöng þar sem hinn spænski Mikel Herrero Idigoras var mættur og skoraði í sínum fyrsta leik fyrir ÍH. Lokatölurnar á Ásvöllum 2-2 sem verða að teljast sanngjörn úrslit.
Tindastóll sigraði á mölinni
Magni 0-2 Tindastóll:
0-1 Kristján Jónsson
0-2 Pálmi Valgeirsson
Magni og Tindastóll spiluðu á mölinni á Grenivík í kvöld. Mikil barátta var fyrsta hálftímann en á 30.mín komst Ásgeir Jóhannesson inní teiginn hjá Tindastól þegar Ingvar Gíslason fyrirliði náði að skalla boltann til hans og Ásgeir átti skot á markið sem Gísli Eyland Sveinsson í marki Tindastóls varði vel í horn.
Aðeins tveimur mínútum síðar náðu Tindastóll forystunni þegar Kristján Jónsson fékk góða sendingu innfyrir vörn Magna og skaut úr skáfæri á mark Magna og náði Atli Már Rúnarsson markmaður ekki að verja.
Á 41. mínútu átti Kristján Páll Jónsson góðan skalla að marki Magna sem Atli varði vel. Á 50.mín áttu Tindastólsmenn góðan skalla að marki sem Atli náði að blaka yfir markið.
Á 55 mín skaut Laszlo, Ungverjinn í liði Magna, rétt yfir úr aukaspyrnu sem hann tók rétt fyrir utan teig en hann var þá nýkominn inná. Á 70.mín áttu Tindastóll góða sókn upp kantinn og Pálmi Valgeirsson fékk oltann inní teig Magna eftir fyrirgjöf og hann fékk nógan tíma til að athafna sig í teignum og átti svo gott skot sem endaði í marki Magna en þarna var vörn Magna illa á verði.
Fátt markvert gerðist eftir þetta og lauk leiknum sem sagt með 0-2 sanngjörnum sigri Tindastóls.
Reynismenn unnu Hamar í Hveragerði
Hamar 2-3 Reynir Sandgerði:
0-1 Anton Ingi Sigurðsson
0-2 Stefán Örn Arnarsson
0-3 Davíð Hallgrímsson
1-3 Kristmar Geir Björnsson
2-3 (Hafsteinn Friðriksson sjálfsmark)
Hamarsmenn byrjuðu þenna fyrsta leik sinn í 2.deild af krafti en það voru Reynismenn sem skoruðu fyrstu mörkin.
Marteinn Guðjónsson vann boltann á miðjunni, gaf á Davíð Örn Hallgrímsson sem sendi fyrir á Anton Inga Sigurðsson og hann kom Reyni yfir með skalla.
Marteinn átti góðan leik á miðjunni og hann kom einnig við sögu í öðru markinu þegar hann átti stungusendingu inn á fyrirliðann Stefán Örn Arnarson sem skoraði.
Hamarsmenn vildu fá víti skömmu síðar en ekkert var dæmt. Reynismenn komust síðan í 3-0 þegar að Davíð Örn lék á tvo varnarmenn og skoraði.
Eftir þetta girtu leikmenn Hamars sig í brók og náði að minnka muninn. Fyrst skoraði Kristmar Geir Björnsson og síðan gerðu Reynismenn sjálfsmark.
Lengra komust Hamarsmenn hins vegar ekki og Reynismenn fögnuðu 3-2 útisgri ásamt um 40 stuðningsmönnum sínum sem voru mættir á leikinn í Hveragerði.



