Heimild: Vefsíða Stjörnunnar
Stjarnan og hollenska félagið AZ Alkaamar hafa komist að samkomulagi um félagaskipti Ólafs Karls Finsen leikmanns Stjörnunnar í AZ Alkaamar.
Ólafur Karl er fæddur 1992 og er því á 16. ári. Þá hafa félögin náð samkomulagi um að Stjarnan fær að senda bæði leikmenn og þjálfara til AZ Alkaamar á ári hverju.
Ólafur Karl er leikmaður 3.flokks karla og er einnig fastamaður í U-17 ára landsliði Íslands en hann spilaði einnig með U-17 ára liði Íslands í fyrra þá aðeins 15 ára gamall.
Ólafur Karl skoraði einmitt sigurmarkið fyrir U-17 ára landsliðið gegn Litháen í október síðastliðnum. Ólafur Karl er miðjumaður eða framherji og mun að öllum líkindum fara til Hollands í júlímánuði.
Þetta er í annað sinn á stuttum tíma sem ungur Stjörnumaður fer utan til erlends félags, en í vor gekk Arnar Darri Pétursson markmaður, til liðs við norska liðið Lyn.



