Fyrra námskeiði Knattspyrnuskóla Kristjáns Bernburg í Belgíu er nú lokið. Það voru 21 kátir íslenskir piltar á aldrinum 14-15 ára sem voru í skólanum í ár og þótti skólinn takast mjög vel.
Emil Ásmundsson í Fylki, og Steinar Sigurjónsson í Selfoss voru valdir bestu leikmenninir í skólanum. Báðir fengu þeir peysur gefnar af Arnari Viðarssyni.
Skólinn þóttist takast mjög vel í alla staði. Mjög jákvæðir piltar sem vildu legja hart að sér og læra meira um knattspyrnu voru í skólanum en auk margra æfinga léku þeir á móti KFC Moerbeke og endaði leikurinn 2-1 með sigri KB skólans.
Hópurinn fór einnig meðal annars í tívoli, Gokart og klifur. Farastjóri var Unnar Stefán Sigurðsson og stóð hann sig frábærlega.
Hér að neðan eru fleiri myndir úr skólanum í ár.


