Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 23. júní 2008 07:15
Guðbjörg Gunnarsdóttir
Viðtalið - Dóra Stefánsdóttir: Brillerar í bestu deild heims
Kvenaboltinn
Dóra Stefánsdóttir í leik með Malmö
Dóra Stefánsdóttir í leik með Malmö
Mynd: Vefsíða Malmö
Dóra fagnar hér einu af mörkum sínum í sumar
Dóra fagnar hér einu af mörkum sínum í sumar
Mynd: Vefsíða Malmö
Dóra í leik gegn Djurgarden
Dóra í leik gegn Djurgarden
Mynd: Vefsíða Malmö
Dóra í leik gegn Umeå
Dóra í leik gegn Umeå
Mynd: Vefsíða Malmö
Mynd: Vefsíða Malmö
Mynd: Vefsíða Malmö
Jörgen Petersson og Martin Sjögren þjálfarar Malmö
Jörgen Petersson og Martin Sjögren þjálfarar Malmö
Mynd: Vefsíða Malmö
Mynd: Vefsíða Malmö
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Vefsíða Malmö
Mynd: Vefsíða Malmö
Mynd: Vefsíða Malmö
Dóra Stefánsdóttir spilar á miðjunni með sænska úrvalsdeildarliðinu Malmö og er fastamaður í íslenska kvennalandsliðinu. Hún hefur farið gríðarlega vel af stað með liðinu og skorað 6 mörk í 10 leikjum og er næst markahæsti leikmaður liðsins.

Aðeins Manon Melis hefur skorað fleiri mörk en hún hjá Malmö en hún er markahæst með 9 mörk. Malmö er sem stendur í þriðja sæti deildarinnar með 21 stig, 7 stigum á eftir toppliði Linköping.

Við settumst niður og ræddum við Dóru Stefánsdóttir um sænsku deildina og íslenska landsliðið en Dóra er einmitt stödd hérlendis þar sem kvennalandsliðið spilar tvo heimalandsleiki. Sá fyrri var við Slóveníu og fór hann 5-0 okkur í hag, Dóra spilaði ekki þann leik vegna meiðsla og sá seinni fer fram á fimmtudag gegn Grikklandi.

Sænska kvennadeildin er af mörgum talin sú sterkasta í heimi og flykkjast bestu leikmenn heims í deildina sem hefur marga gríðarlega sterka leikmenn á borð við Brassana Marta Da Silva og Christiane, þýsku heimsmeistararnir Ariane Hingst og Nadine Angerer spila þar sem og hin danska Johanna Rasmussen og Ramona Bachmann frá Sviss. Svona mætti lengi telja en Damallsvenskan eins og deildin er kölluð er orðin atvinnumannadeild í hæsta gæðaflokki.

,,Deildin hefur farið vel af stað og ekki verið jafnari í mörg ár. Leikirnir eru jafnir og enginn leikur er unninn fyrirfram heldur kreftst topp frammistöðu frá öllum leikmönnum liðsins í hverjum einasta leik, “ sagði Dóra

Malmö er eins og áður sagði í þriðja sæti með 21 stig eftir 10 leiki einu sæti neðar en meistaralið Umeå sem er með 26 stig eftir 11 leiki. Damallsvenskan er 12 liða deild og hvert lið spilar því 22 leiki.

,,Umeå sem hefur varla tapað stigum undanfarin ár hefur verið að gera jafntefli og tapa og það sama er að segja um hin toppliðin. Það gerir baráttuna ennþá skemmtilegri og spennandi. Viss tímabil í sumar eru þéttskipuð og margir leikir eru spilaðir á stuttum tíma, bæði vegna undankeppni EM og svo vegna ólympíuleikann, þar sem sænska landsliðið er með í þeirri keppni. Það gerir það að verkum að álagið er mikið því er mikilvægt að hópurinn sé breiður og stemningin góð.”

Áður en Dóra Stefánsdóttir gekk til liðs við Malmö spilaði hún með Val á Hlíðarenda þar sem hún ólst upp. En telur Dóra að Damallsvenskan sé sterkasta deild í heimi?

,,Ég hef bara spilað í sænsku og íslensku deildinni þannig að það er erfitt að dæma hvort sænska sé sú besta í heimi. En það er staðreynd að margir af bestu leikmönnum heims spila í sænskum liðum og fleiri og fleiri leikmenn sækjast eftir að komast í sænsk lið. svo að því leiti getur sænska deildin talist sú sterkasta eins og er,” sagði Dóra um sænsku deildina.

Deildin hefur farið skemmtilega af stað eins og Dóra sagði og er meira spennandi en áður þar sem toppliðin hafa verið að tapa stigum gegn lakari liðum. Eru einhver lið sem eru að koma Dóru á óvart?

,,Það er ekkert sem kemur á óvart þannig séð. AIK bætti við sig mörgum góðum leikmönnum og hafa farid vel af stað. Djurgarden byrjaði mótið illa en er ad komast á réttan kjöl, enda með marga sterka leikmenn í sínum röðum. Linköping er með hörkulið og fékk til liðs við sig tvær brasilískar stjörnur sem eru að gera góða hluti fyrir liðið Síðan hafa liðin í neðrihluta deildarinnar verið að stela stigum af toppliðunum þannig að það er hörkuspenna í þessu”, sagði Dóra.

Eins og áður sagði eru margir gríðarlega sterkir leikmenn sem spila í sænsku úrvalsdeildinni og mikið um það að útlendingar sækist eftir að spila í Damallsvenskan.

,,Þar sem leikirnir spilast oftast á sama tíma hef ég ekki séð marga leiki og því erfitt að dæma hverjir hafa verið að standa sig betur en aðrir. En það sem ég hef séð þá hefur Manon Melis, senterinn hjá okkur í LdB FC byrjað tímabilið mjög vel og er tvímælalaust með bestu leikmönnum deildarinnar."

,,Yamakutsi, miðjumaðurinn í Umeå hefur líka komið sterk inn í sænsku deildina, á sínu fyrsta ári í deildinni. Síðan eru Nilla Fischer og Therese Sjögran i LdB FC og Caroline Seger Linsköping leikmenn sem eru að standa sig vel og eiga eftir að vera lykilleikmenn í sænska landsliðinu á Ólympíuleikunum,” sagði Dóra.

En hvernig er æfingum háttað hjá atvinnumannaliði eins og Malmö?

,,Æfingarnar hjá Malmö eru mismunandi eftir leikjaálagi. Ef við spilum þétt þá eru æfingarnar blanda af endurhæfingu og að koma kroppnum í stand fyrir næsta leik. Það gerum við með að taka stutta spretti, hopp og ýmsar æfingar. Áherslan er þá að gera allt á hámarkshraða, en í stuttan tíma. Við notum líka tímann til að fara yfir taktíska hluti, þar sem við förum í gegnum móment sem þarf að bæta frá síðasta leik og æfum betur það sem er að virka vel fyrir liðið

Malmö hefur verið með þétta dagskrá í júní og spilaði við AIK, Umeå, Örebro, Djurgarden og Umeå Södra á tímabilinu 1-14 júní.

,,Eins og leikjaálagið hefur verið síðustu vikur þar sem við höfum spilað ca. 12 leiki, þá hafa æfingarnar ekki verið eins margar. Það er mikilvægt að taka hvíldardaga og leyfa líkamanum að ná sér eftir leikina. Annars eru æfingarnar 6-7x í viku, blanda af fótbolta, snerpu, úthaldi og lyftingum.”

Þetta er þriðja tímabildið sem þjálfararnir Jörgen Petersson og Martin Sjögren þjálfa liðið. Hvað hefur Dóra að segja um núverandi þjálfara sína

,,Þjálfararnir eru tveir, mjög hæfir og hafa kennt mér alveg ótrúlega mikið. Aðalþjálfarinn, Jörgen, hefur mikla reynslu og veit hreint ótrúlega mikið um fótbolta. Greinir allt í minnstu smáatriði sem hefur hjálpað mér að bæta marga hluti í mínum leik.

Aðstoðarþjálfarinn sér um úthalds og snerpuþjálfunina og gerir öll lyftingar og hlaupaprógrömm fyrir leikmennina. Þar eru líka öll smáatriði tekin fyrir og bætt sem gerir það að verkum að maður hefur líka tekið framförum á því sviði.

Það eru miklar kröfur gerðar til hvers og eins leikmanns, bæði innan og utan vallar og umhverfið er mjög professional að mínu mati. Því það er nú bara þannig að maður er fótboltaleikmaður 24/7 og lifir lífinu eftir því. Ég fýla þetta mjög vel og það eru forréttindi að vera í því umhverfi sem ég er í. “

Leikmannahópurinn hjá Malmö er 20-22 leikmenn. Það er mikilvægt að hafa góðan og breiðan hóp, bæði vegna leikjaálags en ekki síst til að fá gæði á æfingunum

sagði Dóra sem er greinilega ánægð með umgjörðina og umhverfið sem Malmö hefur skapað.

Dóra er nú orðin fastamaður í liði Malmö sem er frábært afrek útaf fyrir sig þar sem liðið er stjörnuprýtt eins og mörg önnur lið í Damalsvenskan. Við spurðum Dóru hvort hún hafi verið að æfa betur en áður og hvernig henni gekk að vinna sig inní liðið

,,Ég hef alltaf æft mikið og vel og kannski of mikið ef það er hægt að orða það þannig. Því sem ég hef kannski breytt aðeins er hugarfarið og að vera aðeins skynsamari. Tek eina æfingu í einu og einbeiti mér að því að gera eins vel og ég get á því mómenti, ekki fara fram úr sjálfri mér heldur að lifa svolítið meira í „nú-inu“.

,,Samkeppnin er mikil og krefst þess að maður sé alltaf á tánum og vel undirbúinn fyrir hverja einustu æfingu og leik, en á sama tíma að njóta þess að spila og hafa gaman að því sem maður er að gera. Skiptir ótrúlega miklu máli að maður taki ábyrgð á eigin árangri og pæli aðeins í því sem maður er að gera. Held að það komi líka með reynslunni að hvíldin er ótrúlega mikilvæg og nauðsynleg til að maður nái þeim markmiðum maður setur sér. “

,,Síðan er það líka þannig að fótbolti er liðsíþrótt þar sem leikmennirnir gera hvorn annan betri. Mér líður vel hjá félaginu, umgjörðin er góð, gott fólk í kringum liðið og sterkir leikmenn í hverri einustu stöðu og á bekknum. Ég hef lært ótrúlega mikið á því að fara út, bæði innan sem utan vallar, og stefnan er að sjálfsögðu að halda áfram að bæta mig.”


Eins og áður sagði er Dóra næst markahæst í liðinu með 6 mörk og hefur skorað tvær þrennur í sumar.

,,Þegar ég kom til Malmö 2006 þá var ég mest hugsuð sem varnarmaður og spilaði fyrsta tímabilið nær eingöngu sem bakvörður og miðvörður. Í fyrra datt ég einstöku sinnum inn á miðjuna, sem varnarmiðjumaður. Núna í ár höfum við breytt um leikskipulag og erum að spila með einn varnarsinnaðan miðjumann og tvo miðjumenn fyrir framan sem eru töluvert meira með í sókninni.”

,,Ég hef verið að fá að spreyta mig í sóknarmiðjumanninum og það hefur gengið þokkalega vel bara. Og vonandi á þetta eftir að halda svona áfram.”
Sagði Dóra þegar við spurðum hana út í markaskorunina.

Það er ekki vanalegt að ungar stúlkur hugsi sér að verða atvinnumenn í knattspyrnu en Dóra hefur sýnt það og sannað að efnilegar stelpur geta svo sannarlega stefnt á atvinnumennsku í framtíðinni. En hvernig er venjulegur dagur hjá Dóru í Svíþjóð?

,,Venjulegur dagur byrjar með hafragrauti og kaffibolla kl.7, ég held að ég geti talist morgunmanneskja og á oftast ekkert erfitt með að vakna svona snemma. Síðan mæti ég á æfingasvæðið rétt um átta og létt morgunæfing fyrir þær sem vilja frá hálf níu til hálf tíu. Eftir æfingu er svo morgunmatur og síðan fer ég beint í skólann og er þar til tólf.

Ef það er ekki skóli þá fer ég heim eða í bæinn bara að stússast eitthvað. Oftar en ekki þá hittumst við nokkrar úr liðinu og borðum hádegismat í bænum og síðan er ég mætt á æfingu rétt um kl. 3. Stemning að hittast og spjalla áður er æfingin byrjar og aðeins að slá á létta strengi. Æfingin er síðan frá fjögur til sex, nudd og meðhöndlun hjá sjúkraþjálfurunum á eftir ef þarf, og matur í kaffiteríunni.

Kvöldin eru síðan laus fyrir hvað sem er, bíó, göngutúra, lestur eða bara eitthvað tjill. Og þar sem ég er þessi morguntýpa þá slokknar yfirleitt á mér um ellefuleytið.”
sagði Dóra um “venjulegan” dag í lífi sínu.

En telur Dóra að fleiri íslenskir leikmenn geti spilað í þessari sterku deild?

,,Án efa get ég sagt að margar íslenskar stelpur hafa hæfileikana til að spila í sænsku deildinni og ég mæli með því af eigin reynslu. En svo er það þannig að hver og ein verður að finna það út hvað er henni fyrir bestu, hvað hentar og á hvaða tímapunkti það passar að fara út. “

,,Eins og ég segi þá upplifi ég það jákvætt og hentaði mér vel að fara út á þeim tíma sem ég fór, en það er ekki þar með sagt að það passi næsta leikmanni. Hver og ein tekur sínar ákvarðanir og það er bara besta mál. En fótboltalega séð þá eru margir leikmenn sem myndu plumma sig í sænsku deildinni held ég.”


Dóra hefur spilað sem atvinnumaður hjá Malmö tímabilin 2006, 2007 og núna 2008 en fyrir það spilaði hún með Val eins og áður sagði, hvernig finnst Dóru standardinn á íslensku deildinni?

,,Ég hef því miður ekki haft tækifæri á að sjá leiki í íslensku deildinni í alltof langan tíma. En ég reyni að fylgjast með og les um leikina meðal annars á Fótbolti.net sem er toppsíða. Ég get ekki séð annað en að deildin sé að verða sterkari og sterkari. Það er samt ennþá akkilesarhællinn að flestir af sterkustu leikmönnum deildarinnar eru í 2-3 liðum.

,,En engu að síður eru fleiri og fleiri leikmenn að sýna sig og sanna og breiddin er að aukast. Þjálfararnir eru líka góðir og liðin virka betur skipulögð taktískt séð. Svo ég er bjartsýn á að deildin styrkist með hverju ári. Bæði með efnilegum íslenskum leikmönnum og svo eru liðin að fá sterka útlendinga sem auka breiddina og gefa deildinni nýjan blæ,”
sagði Dóra um íslensku deildina

Dóra er lykilleikmaður í A landsliði Íslands og liðinu hefur gengið virkilega vel undanfarið eins og þjóðin veit.

,,Stemningin í landsliðinu er frábær og leikmenn og fólkið í kringum liðið eru að gera virkilega góða hluti. Breiddin er að aukast og margir leikmenn að minna á sig og ábyrgðin dreifist á fleiri leikmenn. Liðið hefur verið að ná vel saman og á vellinum erum við að ná að spila skemmtilegri fótbolta en áður.”

,,KSÍ hefur gert vel í að fá æfingarleiki og skapa umhvefi sem gerir liðinu kleift að bæta sig og láta markmiðin rætast. Landsliðið hefur fengið meiri athygli en áður og stuðning frá þjóðinni og það hefur líka hjálpað. “
sagði Dóra um landsliðið og stemninguna í liðinu.

Ísland vann eins og flestir vita leikinn við Slóveníu 5-0 en Dóra spilaði ekki leikinn vegna meiðsla í kálfa. Dóra verður hins vegar tilbúin í slagin á móti Grikklandi. Við spurðum Dóru út í leikinn mikilvæga.

,,Leikurinn við Grikki leggst bara rosalega vel í mig. Stemningin í hópnum er frábær og sigurinn á Slóveníu gefur okkur aukinn kraft í næsta leik. Leikurinn er mjög mikilvægur í leið okkar á EM. Við stefnum að sjálfsögðu á sigur og ætlum okkur áfram í þessari keppni. Við erum í góðum gír og ætlum okkur að gera eins vel og jafnvel enn betur en í síðasta leik.” sagði Dóra um leikinn gegn Grikklandi á fimmtudag.

Íslendingar eru í 2.sæti síns riðils með 15 stig eftir 6 leiki, 6 stigum fleiri en Slóvenar sem eru í 3.sæti en Ísland á samt leik til góða.

,,Við eigum góða möguleika á að komast áfram eins og staðan er núna og þetta er algjörlega í okkar eigin höndum. Núna skiptir bara öllu máli að fókusera á eitt verkefni í einu og næst á dagskrá er Grikkland á fimmtudaginn. Með sigrinum á Slóveníu tryggðum við okkur umspilssæti, en stefnan er að sjálfsögðu að komast beint á EM."

,,Ekkert annað en sigur kemur til greina og með baráttu, vilja og stemningu held ég að sá leikur fari eins og við stefnum á. Ég hvet alla til að mæta á völlinn á fimmtudaginn og hjálpa okkur í baráttunni. Frábært að sjá fólk mæta á völlinn og fá þjóðina til að taka þátt í þessu með okkur.“
sagði Dóra Stefánsdóttir að lokum við Fótbolta.net um möguleika landsliðsins á því að komast í lokakeppni EM í Finnlandi næsta sumar.
Slapp
banner
banner