Emil Hallfreðsson leikmaður Reggina á Ítalíu og íslenska landsliðsins átti tvískipt tímabil í ítölsku deildinni þar sem hann spilaði alla leiki liðsins fram að áramótum en lenti svo í meiðslum og átti erfitt uppdráttar að fá tækifæri í liðinu eftir að hann jafnaði sig á þeim. Á tímabilinu lék hann undir stjórn þriggja þjálfara og sá síðasti virðist ekki vera mikið gefinn fyrir útlendinga og hafði því ekki mikinn áhuga á að nota Emil í liðinu.
Emil féllst á að segja mér sögu sína af tímabilinu, við settumst niður fyrir utan Kaffi París í Austurstræti á góðviðrisdegi í síðustu viku og hann sagði mér frá nýja þjálfaranum, mafíósanum sem er forseti félagsins, gífurlegri athygli sem hann fær í bænum og frammistöðu sinni með landsliðinu.
Emil féllst á að segja mér sögu sína af tímabilinu, við settumst niður fyrir utan Kaffi París í Austurstræti á góðviðrisdegi í síðustu viku og hann sagði mér frá nýja þjálfaranum, mafíósanum sem er forseti félagsins, gífurlegri athygli sem hann fær í bænum og frammistöðu sinni með landsliðinu.
Þjálfarinn vildi bara nota heimamenn
Emil meiddist á læri í leik Reggina gegn Sampdoria 1. desember síðastliðinn en fram að því hafði hann spilað alla leiki liðsins í ítölsku Serie A-deildinni sem byrjunarliðsmaður. Meiðslin ílengdust og hann var frá miklu lengur en í fyrstu var búist við.
,,Ég fékk þvílíkt hnéspark framan á lærvöðvann, ég var eins og ég væri lamaður í fætinum,” útskýrir Emil. ,,Ég reyndi að halda áfram en það var ekki möguleiki. Ég fór inn í klefa og lét kæla þetta en hugsaði að þetta væri ekkert mál, þetta yrði bara vika og svo væri ég kominn í slaginn aftur.”
,,Svo lengdist þetta í tvo og hálfan mánuð, æsti leikur sem ég spila er þegar ég kem inná í hálfleik á móti Tórínó á heimavelli 3. febrúar. Ég var samt ekki 100% klár þá og í næsta leik á móti Roma á útivelli náði ég ekki að æfa daginn fyrir eftir að það hafði komið bakslag í þetta eftir Tórínó leikinn. Eftir það varð þetta smá basl. Við lentum í að það var rekinn þjálfari í annað skiptið á þessum tímabili og það var smá basl að komast aftur í liðið.”
- Hvernig var þá ástandið í hópnum þegar það eru aftur gerð þjálfaraskipti í byrjun mars og Nevio Orlandi tók við af Renzo UIivieri sem sjálfur hafði tekið við í nóvember?
,,Það voru eiginlega allir orðnir mjög pirraðir á Ulivieri og hans hugmyndum, sérstaklega reyndari leikmennirnir,” sagði Emil. ,,Þessi þjálfari fílaði mig alveg þó það hafi verið aðeins erfiðara að komast í liðið því hann var búinn að ákveða sína menn í liðinu og ég var frá í tvo mánuði. Ég meiddist í þriðja leiknum hans með liðið og var ég meiddur nánast allan tímann sem hann var þarna svo það var svolítið svekkjandi.”
,,Ég var nokkuð jákvæður fyri því að ef hann yrði rekinn þá yrði það allt í lagi fyrir mig því ég þurfti einhvern veginn að komast á núllið aftur gagnvart öllum hinum leikmönnunum.”
,,Síðan varð það mun verra fyrir mig að fá þennan heimamann (Nevio Orlandi) sem þjálfara. Hann vildi bara nota heimamenn, en það gekk alveg upp svo ég veit ekki alveg hvað ég get sagt þannig séð. Við héldum okkur uppi svo ég get ekkert verið að gagnrýna hann endalaust. Hann gaf mér sensinn á móti Napoli á heimavelli (22. mars) og ég nýtti hann. Ég spilaði hrikalega vel í þeim leik og hélt ég myndi vera í liðinu sem varð svo ekki. Ég kom svo inná í næsta leik og var aftur rosalega góður svo þetta var ekkert lengur í mínum höndum heldur í þeirra höndum hvað þeir vildu. Þeir vildu ekkert spila mér og þá varð ég bara að taka því.”
Hinn ítalski Tony Pulis
- Afhverju heldurðu að þú hafir ekki verið í myndinni hjá honum?
,,Ég held að það sé því ég tala ekki 100% ítölsku og er ekkert rosalega góður í henni þó ég geti haldið uppi svona einföldum samræðum. Hann talaði við alla sína leikmenn og hafði góð samskipti við þá en ég held að hann hafi haldið að ég hafi verið miklu lélegri í ítölsku en ég er. Það var alltaf smá diss í honum. Hann útskýrði alltaf sérstaklega fyrir mér hlutina og kom með auðveld ítölsk orð. Ég held það hafi verið því hann héldi að ég skildi ekki neitt í ítölsku. Ég held að það hafi sett strik í reikninginn að ég var ekki Ítali og ekki heimamaður ef ég á að segja alveg eins og er,”
- Íslendingar þekkja vel til Tony Pulis sem var og er í dag hjá Stoke City. Hann var þekktur fyrir að vilja ekki hafa útlendinga í sínu liði og notaði til að mynda aldrei Þórð Guðjónsson og Tryggva Guðmundsson, fannst þér þú vera að upplifa eitthvað slíkt þarna?
,,Þetta er eiginlega hinn ítalski Tony Pulis. Það voru þrír útlendingar sem duttu út úr liðinu hjá honum og hann setti Ítali inn í staðinn. Þetta voru ég, einn Brasilíumaður og Úrúgvæi. Hann hafði næg tækifæri til að spila mér en valdi alltaf ítalskan leikmann framyfir mig. Hann vildi alltaf fá ítalska stemmningu í þetta lið held ég, og var ekki að fíla okkur útlendingana. Ég fann það að hann fílaði mig ekki og það var ekkert sem ég gat gert í því. Svona er boltinn, þetta er fljótt að breytast, einn daginn er maður hetjan og næsta dag er maður skúrkur.”
- Rædduð þið ekkert um þína stöðu hjá liðinu?
,,Nei, voðalega lítið. Hann sýndi því voðalega lítinn áhuga að ræða við mig og mér datt ekki í hug að fara að ræða við þennan mann á þessum tímapunkti. Ég átti engar alvöru samræður við hann um þetta en auðvitað talaði ég aðeins við hann. Ég fór aldrei beint til hans og spurði afhverju ég væri ekki í liðinu. Það gekk vel hjá liðinu og við vorum að bjarga okkur frá falli og þá er erfitt að segja eitthvað. Ég ákvað að vera rólegur og hugsaði að þetta er fyrsta tímabilið mitt og ég sé hvað gerist eftir þetta tímabil.”
- En ræddirðu við einhvern annan hjá félaginu þá um þín mál?
,,Ég talaði aðeins við forsetann. Hann er mjög ánægður með mig og hefur alltaf haft mikið álit á mér. Hann stjórnar þessu batterýi rosalega mikið. Hann er Reggina. Hann keypti mig til félagsins og sá hvað ég var góður í þeim leikjum sem ég spilaði. Ég hef aðeins rætt við hann en var ekkert að ræða framtíð mina á ítölsku við hann. Ég veit að hann hefur verið ánægður með mig hingað til.”
Nettur mafíósafílingur í forsetanum
- Hvernig náungi er forsetinn?
,,Hann er ‘The Boss’, hann er stjórinn þarna og stjórnar öllu. Hann er alvöru Ítali, með vindilinn í kjaftinum og það er nettur mafíósafílingur í honum. Ef þú hefur horft á Godfather myndirnar þá sérðu hvernig náungi hann er. Allir Ítalir eru smá mafíósar. Ég veit ekki hvort hann hefur áhrif á liðið en hann stjórnar öllu, þar á meðal leikmannakaupum. Hann er ágætis gæi.”
- Var það þá hann sem valdi það að þú kæmir til félagsins þegar þú varst keyptur frá Lyn í Noregi 28. júlí í fyrrasumar?
,,Hann keypti mig, hann kom til Osló í Noregi með vindilinn í kjaftinum, ‘Bon journe, amigo’. Þegar ég var í úrvalsliði nýliða var honum þakkað rosalega mikið hrósað fyrir að hafa fundið mig í Noregi. Þá var hann voðalega ánægður með að hafa fengið þetta hrós, en í raun var það útsendari liðsins sem hafði séð mig spila þegar ég var í Malmö, þess vegna keyptu þeir mig.”
- Hvernig stóð á því að þeir kaupa þig ekki beint frá Tottenham þar sem þú varst þar til 11. júlí þegar Lyn keypti þig, 17 dögum síðar ferðu til Reggina?
,,Ég held að þeir hafi verið of seinir, þeir seldu akkúrat vinstrifótar leikmann þarna og þá bara, ‘við verðum að fá einhvern’. Þá var ég nýfarinn til Lyn um sumarið.”
Ég er bestur hjá Reggina
- Hvernig líður þér þá með það að þú ert að snúa aftur til Ítalíu um miðjan júlí og hefja æfingar með liði þar sem þér leið ekkert vel með þína stöðu þegar þú fórst í sumarfrí í maí?
,,Ég held að það þýði ekkert að pæla þannig í því, ég verð að fara þarna út nokkuð jákvæður,” sagði Emil. ,,Það er ekkert annað í boði en að fara jákvæður og gefa allt í þetta og sjá hvort hann byrji ekki að fíla mig. Ég tek einhverja rosalega þjálfarasleikju á þetta líka og býð honum í mat og eitthvað svoleiðis. Ég er búinn að vera á ítölsku námskeiði á fullu í sumar og á svo eftir að ræða við hann.”
,,Ég fer þarna út mjög jákvæður og gef allt í þetta og spyr þá svo hvað þeir eru að hugsa með mig. Þetta er heldur ekki stór hópur, við erum bara 24 manna hópur. Ég gef allt í þetta, ég veit að ég er betri en flestir þarna. Ég er bestur þarna, það mætti segja það. Mér hefur alltaf fundist það og það er bara þannig, en það er mitt álit, svo hafa aðrir kannski annað álit, en þá vita þeir ekkert um fótbolta.”
- En nú hefst ítalska deildin ekki fyrr en 31. ágúst næstkomandi og félagaskiptaglugginn lokar þá um kvöldið. Hefurðu þá þolinmæði að bíða í hálft þar til félagaskiptaglugginn í janúar hefst á meðan þú sérð hver staða þín verður?
,,Ég held að þetta muni koma í ljós áður en glugginn lokar 1. september. Þá verður alveg komið í ljós hvort ég verði í þessu liði eða ekki,” sagði Emil. ,,Það mun verða komið á hreint fyrir 1. september hvort ég spili þarna eða ekki. Svo mun Arnór [Guðjohnsen umboðsmaður Emils] tala við þá og sjá hvað þeir eru að hugsa. Ég mun líka tala við þá ef ég er ekki að spila á undirbúningstímabilinu og sjá hvað þeir eru að hugsa.”
,,Ég ætla ekki að festa mig þarna ef ég fæ ekki að spila, ég held að þeir vilji það ekki heldur. Ef þeir ætla að halda mér þá er það til að spila mér, en ef þeir selja mig þá er það því þeir vilja losna við mig. Þeir vilja ekki vera með leikmenn sem eru ekki að spila, þetta er ekki eins og Tottenham sem geta verið með 45 leikmenn og haft þá alla á þvílíkum launum. Reggina er með lítinn kjarna og vill hafa þá sem spila en vilja svo losna við hina. “
Mistök ef þeir láta mig ekki spila
- Heldurðu að þeir myndu þá vilja losna við þig til að lækka launagreiðslur.
,,Ég er ekki á neinum Rio Ferdinand samning… rólegur..,” sagði Emil og hló.
- En þú óttast samt ekki að þeir vilji halda þér í hópnum þó þú sért ekki að spila?
,,Ef forsetinn myndi verða full út í mig þá myndi hann alveg getað haldið mér í fjögur ár og fryst mig og borgað mér launin mín. Þessi klúbbur er vel stæður og hefur aldrei verið í peningaveseni. Sérstaklega núna þegar það voru að koma nýir sjónvarpssamningar með helling að peningum fyrir hvert félag.”
,,Það hefur verið þannig stefna hjá þessum forseta að ef menn eru ekki að spila til langs tíma þá vill hann losna við þá. Þannig var það með tvo Dani sem hann keypti og vill losna við þá báða því þeir komust ekki í lið og voru ekki góðir.”
,,Hann villl ekki borga mönnum laun fyrir að gera ekki neitt, nema maður sé varamaður og alveg við það að komast inn. Hann selur mikið af leikmönnum og er alltaf að kaupa og selja, Reggina er þannig lið. Ég býst við því að ef ég verði ekki í myndinni þá vilji hann fá pening fyrir mig. Það verður að koma í ljós en ef hann lætur mig ekki spila þá eru það hans mistök, hann væri þá að missa aðalleikmanninn.”
- Það hefur verið mikið af vangaveltum í fjölmiðlum um þína framtíð, þú ert oft orðaður við Napoli og Sky Italia orðaði þig í byrjun júní við Lazio. Hvað veist þú um þennan meinta áhuga ítalskra liða?
,,Ég get viðurkennt að ég vissi af þessu með Napoli, það var mikið til í því. En svo er alltaf spurningin hvað hefði gerst ef ég hefði spilað alla leiki á þessu tímabili og haldið áfram að ganga svona vel. Það að ég spilaði ekki í restina og náði bara 22 leikjum þá hafði það örugglega eitthvað að segja og þeirra áhugi hefur kannski eitthvað dvínað. Ég veit ekki hvort áhugi Napoli sé enn til staðar eða ekki, en ég vissi ekkert um þetta með Lazio.”
Eins og maður sé einhver Beckham
- Myndirðu vilja vera áfram á Ítalíu ef svo fer að þú yfirgefur Reggina?
,,Já, ég held það, algjörlega ef það er einhver flottur staður. Eins og ef þetta væri rétt með Lazio, að vera í Róm eða einhverjum slíkum stað. Það eru margir flottir staðir á Ítalíu. Staðurinn sem ég var á, Reggina, er svolítið langt í burtu og erfitt að komast þangað því það þarf þrjú flug. Það væri gaman að vera einhversstaðar á Norður Ítalíu þar sem þarf bara tvö flug til að komast heim og auðvelt að fá heimsóknir. Þetta er aðeins erfiðara þar sem ég er núna. Ég veit það eftir þetta tímabil að ég er búinn að búa mér til smá nafn. Þessi lið þekkja mig og vita hver ég er. Ég er ekkert að örvænta þannig séð en maður veit aldrei með fótboltann, hann er skrítinn.”
- Hvernig er fyrir þig að vera fótboltamaður í Reggina, þekkir fólk þig alveg úti á götu?
,,Jájá, það er alltaf kallað ‘Alfredo’, það er ógeðslega fyndið. Ég var alltaf kallaður ‘Alfredo’ eða ‘Alfreds’ því þeir segja ekki ‘H’ ið í Hallfreðsson. Annar þjálfarinn minn spurði hvort hann mætti kalla mig ‘Alfredo’ og ég sagði ‘Já, blesssaður vertu, mér er alveg sama’. Ég er aldrei kallaður Emil, það er bara ‘Alfredo’.”
,,Ef ég fer niður í bæ í Reggina þá heyri ég mikið kallað. Fótboltaliðið Reggina er svo mikilvægt í bænum og svo sker ég mig út úr hópnum því ég er hávaxinn miðað við Ítalina og rauðhærður og hvítur og fjallmyndarlegur.”
,,Það eru alltaf gamlir kallar að kalla á mig, ‘Alfredo’, og fólk að bjóða mér með sér í kaffi. ‘Komdu hérna Alfredo, fáum okkur kaffi saman’. Þetta er svolítið fyndið . Ég er engin goðsögn en þeir eru svolítið fanatískir. Ég spjalla aðeins við þá, er bara ‘si si’ á fullu og hef ekki verið að skilja þá. En ég skil þá núna nokkuð vel.”
,,Ég spjalla við suma en sumir kalla bara á mann og svo er það búið, maður vinkar á móti. Það er eins og maður sé einhver Beckham. Fyrst þegar ég kom þarna var ég svo óvanur þessu og leið eins og einhver ofurstjarna, en þetta er ítalskt. Ef ég fer eitthvað út í bæ eða í stórmarkað þá er ég alltaf stoppaður,”
‘Alfredo, þið verðið að vinna um helgina’,
‘Alfredo, þrjú stig er mikilvægt’,
‘Alfredo afhverju ertu ekki að spila núna?’
‘Alfredo, hvað með þjálfarann, afhverju er hann ekki að spila þér?’
‘Alfredo, vel gert í leiknum’.
,,Maður fær geðveikt feedback úr bænum en ég var rosalega óvanur því fyrst og vissi ekkert hvernig ég ætti að bregðast við. Þetta er alveg eins með aðra leikmenn líka en samt mismikið. Ég sker mig út úr útaf útlitinu og er öðruvísi leikmaður inni á vellinum en Ítalirnir. En þetta er eðlilegt fyrir þeim. Mér fannst það mjög óeðlilegt fyrst.”
Hélt ég myndi skíta í buxurnar
- Þú hefur átt fasta stöðu í íslenska landsliðinu og þar hafa verið nokkrar breytingar að undanförnu, með nýjum þjálfara hefur æfingaleikjum til dæmis fjölgað, hvernig horfir þetta við þér?
,,Það hafa verið margir æfingaleikir og er búið að prófa rosalega mikið af leikmönnum, það er jákvætt. Svo hafa verið meiðsli og það hefur vantað lykilmenn eins og Jóhannes Karl, Brynjar Björn og Stebba Gísla á miðjuna og Árna Gaut í markið, svo hefur Eiður Smári verið lítið með. Svo hætti Ívar Ingimarsson, hann var svo rosalega mikilvægur fyrir þetta landslið, hann var frábær karakter og yndislegur náungi. Það er hrikalega leiðinlegt að hann sé hættur. Ef hann hefði haldið áfram þá held ég að við værum með sterkari vörn en er í dag. Það er leiðinlegt að hann sé hættur, hann kemur ekkert til baka eins og aðrir sem hafa verið að misssa úr eftir meiðsli. “
,,Reyndar erum við með Ragga Sig sem er öflugur en hann er ungur á móti reynslunni hans Ívars. Það er fullt af nýjum leikmönnum komnir inn sem er jákvætt að skoða. Svo þarf að velja þá leikmenn sem á að nota og spila þeim sem Óli ætlar sér að nota í æfingaleik. Það er æfingaleikur við Azerbajan 20. ágúst og þá verður væntanlega sterkasta liðið sem hann ætlar að nota í fyrsta leik í móti, vonandi verða allir heilir þá. Hemmi kjálkabrotnaði og það er rosalegur missir í honum þegar hann er ekki með, hann er svo mikilvægur fyrir móralinn og svo er hann rosalega góður leikmaður.”
- Þú áttir fast sæti í landsliðinu undir stjórn Eyjólfs Sverrissonar og Ólafur Jóhannesson núverandi þjálfari hefur líka valið þig í liðið og þú hefur byrjað á kantinum. Hvernig meturðu þína stöðu eftir þjálfaraskiptin?
,,Ég á ekkert fast sæti í landsliðinu. Mér fannst ég spila marga góða leiki í undankeppninni, á móti Spáni og Svíþjóð til dæmis. Við gátum ekki neitt á móti Danmörku í síðasta leiknum í undankeppni EM í nóvember, n svo hafa verið tveir æfingaleikir upp á síðkastið. Fyrst var það Slóvakíuleikurinn sem var ekkert spes hjá mér persónulega. Svo spiluðum við um daginn gegn Wales og mér fannst ég góður í fyrri hálfleik en ég var með í maganum í leiknum og ég hélt bókstaflega að ég myndi skíta á mig í seinni hálfleik. Ég fékk eitthvað í magann fyrir leikinn og fékk svakalegan niðurgang. Ég er ekkert að afsaka mig en alltaf þegar ég tók sprett hélt ég að ég væri að kúka á mig.”
,,Ef ég er að spila á fullu með Reggina þá á ég heima í þessu landsliði, það þarf enginn að segja mér neitt annað. Ég var að horfa á Landsbankamörkin þar sem Tómas Ingi Tómasson var að tala um að ég hafi verið lélegur í síðustu leikjum og vildi fá Tryggva Guðmundsson inn. Ef Tómas Ingi vill það þá hann um það. Ef menn vilja annan inn þá velur Óli það. En alltaf þegar ég spila með landsliðinu reyni ég að standa mig eins vel og ég get. Það er allt öðruvísi að spila með landsliði heldur en félagsliði. Að mínu mati á ég að vera í landsliðinu.”
Verð blanda af Henry og Zidane
- Sem fyrr sagði kom það óvænt upp að þú endaðir í ítölsku deildinni, að lokum ætla ég að biðja þig að gera upp tímabilið í heild sinni, ertu ánægður með það?
,,Þetta er búið að vera í heildina gott fyrsta ár fyrir mig. Það er alltaf sagt að útlendingar sem eru að spila fyrsta tímabil í ítölsku deildinni lendi í smá vandamálum og ég virðist hafa gert það líka. Zidane gat ekkert á fyrsta tímabilinu með Juventus, Thierry Henry gat heldur ekki neitt hjá Juventus, ég held ég verði eins og blanda af Henry og Zidane á næsta tímabili. Ég tek þetta með trompi á næsta tímabili.”


